Frétt

Þjóðverjinn Andre Rosset var að vonum ánægður með aflann.
Þjóðverjinn Andre Rosset var að vonum ánægður með aflann.
Lúðan var býsna stór.
Lúðan var býsna stór.
Veiðifélagarnir að löndun lokinni.
Veiðifélagarnir að löndun lokinni.

bb.is | 19.06.2007 | 09:42175 kílóa lúða fékkst á sjóstöng út af Súgandafirði

Stórlúða veiddist á sjóstöng út af Súgandafirði í gær, en hún vóg 175 kíló. Veiðimennirnir eru í hópi þýskra sjóstangveiðimanna sem eru við veiðar hjá ferðaþjónustufyritækinu Hvíldarkletti ehf. á Suðureyri. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem veiðimennirnir fá stórlúðu en í síðustu viku veiddust tvær nokkuð stórar lúður. Sú sem veiddist í gær er rúmlega tvöfalt stærri en þær fyrri. Ekki er vitað til þess að svo stór lúða hafi fengist á stöng á Íslandi. Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hvíldarkletts, segir að svona veiði sé mjög góð auglýsing fyrir sjóstangaveiðina á Suðureyri. „Það vill þannig til að það er maður frá ferðskrifstofunni Angelreisen hjá okkur. Hann sagði að það yrði uppselt hjá okkur á næsta ári þegar þessi fiskisaga flýgur af stað. Svo eru hér kvikmyndatökumenn að gera heimildarmynd um sjóstangaveiði þannig að þetta náðist allt á filmu.“

smari@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli