Grein án commenta

19.05.13 Guðsþjónusta á hvítasunnudag í Suðureyrarkirkju

19.05.13 Messa í Ísafjarðarkirkju

19.05.13 Fermingarmessa í Flateyrarkirkju

Error while loading control : Object reference not set to an instance of an object.

Sælkeri vikunnar – Haukur Árni Hermannsson á Ísafirði | 13.07.2012 | 08:06Tvær góðar kjúklingauppskriftir

„Ég ætla að bjóða upp á tvær kjúklingauppskriftir. Önnur er Cajun kjúklingur, sem er í miklu uppáhaldi á mínu heimili. Hin er heilgrillaður kjúklingur á teini.“

Cajun kjúklingur

700 g kjúklingabringur
1-2 msk. Cajun krydd
1 búnt vorlaukur
6 sólþurrkaðir tómatar
Basil krydd (fersk basilika er betri)
2,5 dl. matreiðslurjómi
Smjör/olía til steikingar
Salt og pipar
500 g spaghetti
Parmesan ostur

Byrja á að brytja kjúllann í bita og krydda með Cajun kryddinu. Hita olíuna/smjörið á pönnu og steikja kjúklinginn. Þegar kjúllinn fer að verða tilbúinn er söxuðum vorlauk, söxuðum sólþurrkuðum tómötum, basilikunni og rjómanum hellt úr á pönnuna. Saltað og piprað.
Þetta er svo borið fram með soðnu spaghetti og parmesan osti fyrir þá sem það vilja.

Heilgrillaður kjúklingur á teini

Heill kjúklingur snyrtur
1 búnt af steinselju
1 búnt af basiliku
Olía
Salt og pipar
1 appelsína
1 sítróna
Rósmarínstilkar

Saxa steinselju og basiliku fínt og blanda saman. Setja þessa ferskjurtablöndu inn undir skinnið á kjúllanum, bringuna, lærin og bara þar sem hægt er að koma því. Baða kjúllann svo úr olíunni, salta og pipra.
Skera sítrónu og appelsínu og setja inn í kjúllann ásamt rósmarín. Þetta gefur honum frískara bragð. Þá má alveg setja svolítið af olíu inn í kjúllann líka.
Venjulegur kjúklingur þarf u.þ.b. 1 1/2 klst við 140-150° Best er þó að vera með kjöthitamæli. Tilbúinn þegar hiti í innanverðum lærum er kominn í 68-70°.

Ég ætla svo að skora á Inga ofurkokk í Bláa Lóninu (Ingi Þórarinn Friðriksson frá Ísafirði). Hann kemur örugglega með eitthvað rosalegt.


Til baka - Prenta grein - Senda grein - Senda á Facebook

Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi