Sælkeri vikunnar – Birgir Þór Halldórsson frá Ísafirði ásamt Þórdísi Magnúsdóttur | 29.06.2012 | 09:28Dásamleg dressing
„Mig langar að kynna fólki fyrir frábærri dressingu sem ég kynntist fyrir ekki svo löngu síðan en þessi dressing er frábær út á t.d. kjúklingasalat eða grillaðan fisk,“ segir Birgir.Dressingin dásamlega
2 msk balsamik edik
2 msk sætt sinnep
2 msk sýróp
2 hvítlauksgeirar smátt saxaðir
3 tsk kryddolía úr fetaosti (eða bara einhver krydduð olía)
Þessu er bara öllu hrært saman í skál og borið fram til hliðar við kjúklingasalatið eða fiskinn og skammtar hver sér eftir smekk.
Fyrir þá sem vilja fá sér eitthvað ferskt og einfalt í sumar þá er upplagt að fá sér salat með þessari dressingu.
Þið þurfið bara kál (eftir smekk), kirsuberja tómata, saxaðan rauðlauk, rauð vínber (skorin í tvennt) og niðursneidda rauða papriku blanda saman í skál.
Svo skal steikja á pönnu kjúklingalundir (óþarfi að krydda því dressingin sér um að kæta bragðlaukana) og hafa með salatinu, en einnig er hægt að elda kjúklingabringu og skera hana smátt niður og hræra út í salatið.
Þetta er eitthvað sem allir ættu að geta töfrað fram og tekur alls ekki langan tíma.
Ég skora á Heiðar Inga Marinósson frá Ísafirði.
Til baka - Prenta grein - Senda grein - Senda á Facebook