 Agnes afhenti Daníel Jakobssyni bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar fyrsta bolinn í framleiðslunni í síðasta mánuði. |
bb.is | 03.08.2012 | 10:54Minjagripir frá Ísafirði sendir út fyrir landsteinana
Framleiðsla á ísfirskum minjagripum fer vel af stað, en sala á stuttermabolum, buffi, barmmerkjum, pennum og staupum hófst í síðasta mánuði. Gripirnir eru prýddir nýju bæjarmerki Ísafjarðarbæjar. „Viðtökurnar hafa verið frábærar,“ segir Agnes Ósk Marzellíusardóttir sem stendur fyrir framleiðslunni. Nú þegar eru nokkrir bolir komnir út fyrir landsteinana en til dæmis var ég að senda einn til Los Angeles til Ísfirðings sem býr þar. Þrátt fyrir að salan sé nýfarin af stað er enn að bætast við úrvalið. „Nú er ég komin með fimm týpur af fullorðinsbolum og tvær af barnabolum.“
Agnes segist vongóð um að salan muni ganga vel um komandi helgi þar sem von er á mörgum brottfluttum Ísfirðingum en gripirnir hafa fallið vel í kramið meðal þeirra og þá sérstaklega bolirnir. „Ég var að selja bolina á vellinum þegar Púkamótið var og það gekk mjög vel. Ég fékk góð viðbrögð og sérstaklega fannst mér gaman að margir krakkar sögðust vilja eignast svona bol.“
Agnes selur vörurnar sjálf í gegnum Facebook undir heitinu Ísfirskir minjagripir og þær eru einnig til sölu í Vestfirsku verzluninni. Þá eru smámunirnir til sölu á Hótel Ísafirði og hjá upplýsingamiðstöð ferðamála á Ísafirði. „Svo er aldrei að vita nema ég verði með varning til sölu á Mýrarboltasvæðinu, það fer svona eftir því hversu mikinn tíma ég hef og hversu drullug ég verð,“ segir Agnes og hlær en þar er hún að sjálfsögðu að vísa til þess að hún verður meðal keppenda.
Þess má geta að bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti að gera nýja útgáfu af merki Ísafjarðarkaupstaðar að byggðamerki Ísafjarðarbæjar síðasta haust eftir áralanga leit að hentugu tákni fyrir hið sameinaða sveitarfélag. Um árabil var byggðamerki bæjarins samansett úr byggðamerkjum fjögurra af átta fyrrverandi sveitarfélögum bæjarins. Finna þurfti því merki sem myndi uppfylla reglugerð um skráningu byggðarmerkja, en samkvæmt henni er ekki heimilt að nota fjögur samsett merki sem byggðamerki
Samkvæmt lýsingu Halldórs Péturssonar, höfundar á merki gamla Ísafjarðarkaupstaðar, sýnir það bát á siglingu á sjávarfleti, til beggja handa eru há Vestfjarðafjöllin en úti fyrir firðinum er miðnætursólin að hníga til viðar. Var það mat nefndar, sem skipuð var til að koma með tillögur að nýju skjaldarmerki, að með tilliti til lýsingar höfundar væri merkið lýsandi fyrir alla fimm byggðarkjarna sveitarfélagsins, hvort sem um er rætt þá tvo byggðarkjarna sem voru í gamla Ísafjarðarkaupstað eða núverandi byggðarlög Ísafjarðarbæjar, allt frá Arnarfirði, til Dýrafjarðar, Önundarfjarðar, Súgandafjarðar, Skutulsfjarðar og Hnífsdals.
thelma@bb.is
Einn af stuttermabolunum sem prýddir eru byggðamerki Ísafjarðarbæjar.