21.01 2012 – Ríflega 230 manns sóttu árlegt þorrablót Bolvíkinga sem haldið var í 67. sinn laugardagskvöldið 21.janúar. Efnt er til blóts í Bolungarvík á fyrsta laugardegi í þorra ár hvert og bjóða þá bolvískar konur bónda sínum til slíkrar skemmtunar. Þorrablótið er ætlað hjónum, sambýlisfólki, ekkjum og ekklum í Bolungarvík. Öllu var tjaldað til að gera kvöldið sem veglegast og stigu skemmtinefndarkonur á stokk í hinum og þessum hlutverkum. Stiklað var á á stóru um ýmsar fréttir frá bænum á árinu áður. Í þetta sinn komu til dæmis álfarnir við sögu sem leitað var sátta við í sumar og svo ísbjörninn sem skipverjar á Sædísi ÍS rákust á skammt frá Hælavík á Hornströndum. Ljósmyndari vefsins smellti af meðfylgjandi myndum á blótinu.