Hin árlega sæluhelgi á Suðureyri var haldin um aðra helgi í júlí og þótti takast vel þrátt fyrir að veður hafi ekki verið með besta móti. Að vanda var mikið um skemmtanir af ýmsu tagi. Hátíðin hófst á fimmtudag með frumsýningu leikfélagsins Hallvarðar Súganda á Ronju ræningjadóttur og tónleikum hljómsveitarinnar Apollo. Á laugardag var farið í fjallgöngur, haldin var fjölskylduhátíð og mansaveiðikeppni sem ávallt setur svip sinn á hátíðina. Um kvöldið voru haldnir dansleikir þar sem hljómsveitin Delta-44 lék fyrir dansi. Á sunnudag var efnt til sæluhátíðar á Kambinum við Þurrkver þar sem m.a. var boðið upp á markaðstorg og ýmis leiktæki fyrir börnin. Keppt var í fjölbreyttum greinum og má þar nefna kleinubakstur, húsmæðrafótbolta og söng. Að loknu hinu hefðbundna „sæluslútti“ héldu gestir og heimamenn annað hvort heim til sín eða á lokasýningu Ronju ræningjadóttur. Páll Önundarson tók meðfylgjandi myndir á Sæluhelgi.