Hin árlega Sæluhelgi á Suðureyri var haldin um aðra helgi júlímánaðar og þótti takast vel en að vanda var mikið um skemmtanir af ýmsu tagi. Dagskráin hófst á fimmtudag með frumsýningu Hallvarðar Súganda á N.Ö.R.D og tónleikum hljómsveitarinnar Appolo. Þá mættu Vestfjarðavíkingar á svæðið og tókust á í aflraunum. Á laugardag voru fjallgöngur og fjölskylduhátíð og hin árlega mansakeppni sem ávallt setur svip sinn á hátíðina. Þá var keppt um Vestfjarðabikarinn í kappróðri í fyrsta sinn og fóru heimamenn með sigur bæði í kvenna- og karlaflokki. Um kvöldið voru síðan haldnir dansleikir þar sem hljómsveitin Bikkebane lék fyrir dansi. Á sunnudag var efnt til sæluhátíðar á „Kambinum“ við Þurrkver þar sem m.a. var boðið upp á markaðstorg og ýmis leiktæki fyrir börnin. Þá var keppt í fjölbreyttum greinum m.a. í kleinubakstri, húsmæðrafótbolta og söng. Páll Önundarson var á Suðureyri og fylgdist með Sæluhelginni.