Myndayfirlit

Fiskveisla á Suðureyri

Íslandssaga hf. og Klofningur ehf. buðu starfsfólki sínu og mökum til fiskveislu í félagsheimilinu á Suðureyri laugardaginn 30. apríl. Voru þar samankomnir um 160 veislugestir en þetta er í fjórða sinn sem veislan er haldin. „Fiskveislan heppnaðist að öllu leiti frábærlega vel. Það var allt frábært á matseðlinum en framreiddir voru 18 réttir þar sem kenndi ýmissa grasa“, segir Óðinn Gestsson, framkvæmdastjóri Íslandssögu. Matreiðslumeistarar SKG veitinga framreiddu kræsingar úr afurðum fyrirtækjanna og unnu rétti úr steinbít, ýsu, keilu, ufsa og þorski. Fjölbreytt skemmtidagskrá var einnig í boði og skemmti leikarinn Magnús Ólafsson gestum, en Magnús er vel þekktur sem Bjössi bolla. Þá var nýja sæluhelgarlagið „Sæluminningar“ kynnt og Pínulitli leikklúbburinn flutti atriði úr Dýrunum úr Hálsaskógi. Að borðhaldi loknu hélt slóvaski skífuþeytirinn DJ Slavo uppi fjörinu á diskóteki fram eftir nóttu. Páll Önundarson var í veislunni og tók þar meðfylgjandi myndir.

JT6R8735.jpg
JT6R8746.jpg
JT6R8760.jpg
JT6R8767.jpg
JT6R8779.jpg
JT6R8780.jpg
JT6R8781.jpg
JT6R8790.jpg
JT6R8791.jpg
JT6R8799.jpg
JT6R8801.jpg
JT6R8806.jpg
JT6R8807.jpg
JT6R8808.jpg
JT6R8820.jpg
JT6R8823.jpg
JT6R8824.jpg
JT6R8831.jpg
JT6R8833.jpg
JT6R8835.jpg
JT6R8837.jpg
JT6R8839.jpg
JT6R8841.jpg
JT6R8842.jpg
JT6R8843.jpg
JT6R8854.jpg
JT6R8855.jpg
JT6R8862.jpg
JT6R8881.jpg
JT6R8887.jpg
JT6R8889.jpg
JT6R8895.jpg
JT6R8897.jpg
JT6R8942.jpg
JT6R9018.jpg
JT6R9037.jpg
JT6R9053.jpg
JT6R9056.jpg
JT6R9119.jpg
JT6R9159.jpg
JT6R9202.jpg
JT6R9253.jpg

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli