Mýrarboltinn 2006
Evrópumeistaramótið í Mýrarbolta fór fram á laugardag og er mál manna að vel hafi tekist til. Fyrsti leikurinn hófst klukkan 10 um morguninn og var spilað linnulaust til kl. 19 þegar úrslitaleik í karlaflokki lauk með sigri Englanna á Aðskilnaðarsamtökum Vestfjarða. Þátttökumet var sett á mótinu en 28 lið tóku þátt og mörg býsna skrautleg, en sum liðin leggja mikið upp úr búningum og er hvatt til þess af mótshöldurum. Eindæma veðurblíða var á mótsdaginn og því mikið af fólki sem leit við inn í Tungudal til að fylgjast með herlegheitunum, en þó fór að rigna þegar leið á daginn sem gerði vellina bara enn betri. Í lokahófi um kvöldið voru Evrópumeistarar í karla- og kvennaflokki krýndir auk þess sem ýmis aukaverðlaun voru veitt. Birgir Þór Halldórsson, þekktur sem Biggi bloggari var valinn skítugasti leikmaðurinn og er hann vel af titlinum kominn, Pétur Magnússon hlaut sérstök heiðursverðlaun á lokhófinu en stjórn Mýrarboltans krýndi hann sem stuðningsmann Mýrarboltans 2006 en hann hefur reynst stjórninni haukur í horni við undirbúning mótsins. Meðfylgjandi myndir frá mótinu tók Sigurjón J. Sigurðsson.