Meistarakokkarnir Úlfar Eysteinsson og Rúnar Marvinsson ásamt aðstoðarkokki sínum, Sigurði Aðalsteinssyni, töfruðu fram fjölbreytilegar kræsingar í fiskiveislu sem fiskvinnslufyrirtækin Íslandssaga og Klofningur á Suðureyri buðu starfsfólki sínu og mökum þeirra til laugardagskvöldið 12. apríl sl. Fjöldi fólks sótti veisluna og var þéttskipaður bekkurinn í félagsheimilinu á Suðureyri. Fjölbreytt skemmtiatriði voru í boði sem starfsmenn fyrirtækjanna höfðu sett saman. Auk þess mætti hin landsfræga gríndrottning Helga Braga Jónsdóttir til leiks og sýndi alþjóðlegan magadans. Kántrýsveitin Unaðsdalur lék síðan fyrir dansi fram til kl. 1 um nóttina. Eftir það hélt fólk út í vornóttina og fór ýmist til síns heima eða í önnur samkvæmi. Myndirnar frá fagnaðinum tók Páll Önundarson.