05.08.2007 – Evrópumeistaramótið í mýrarbolta var haldið á Ísafirði um verslunarmannahelgina. Gríðarlegur fjöldi mynda var tekinn á mótinu, enda er mýrarbolti með allra myndrænustu íþróttagreinum heims. Karlar og konur, heima- og aðkomumenn, veltu sér saman eins og svín upp úr drullunni alla helgina, þeim sjálfum og áhorfendum til mikillar skemmtunar. Meðfylgjandi myndir frá mótinu voru teknar af Sigurjóni J. Sigurðssyni.