Sumarhátíðin Sæluhelgi á Suðureyri tókst með eindæmum vel. Hátíðin var sett með frumsýningu leikfélagsins Hallvarðar Súganda á leikritinu Himnaríki eftir Árna Ibsen í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar og tónleikunum Skítarokk í skurðinum, en þar var um nýjung að ræða á Sæluhelgi. Að vanda var í boði margt til skemmtunar á hátíðinni og má þar nefna kappróður um Vestfjarðabikarinn, kassabílarallí, Sæluhátíð á Sjöstjörnu og að sjálfsögðu hina árlegu mansakeppni sem ávallt setur svip sinn á hátíðina. Páll Önundarson var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir.