Súgfirðingar blótuðu góu í félagsheimilinu á Suðureyri laugardagskvöldið 22. febrúar. Komust færri að en vildu en um 160 manns sátu undir borðum. Hefð er fyrir því á Suðureyri að konur á staðnum standi fyrir þorrablóti annað hvert ár og svara karlarnir fyrir sig hin árin með góublóti. Hefðbundnar þorraveitingar eru hafðar um hönd og tóku Súgfirðingar hraustlega til við að tæma trogin. Hin prýilegasta dagsskrá var fram eftir kvöldi og þóttu skemmtiatriði takast vel. Gleðinni var þó engan vegin lokið því að borðhaldi loknu var salurinn rýmdur og gestir tjúttuðu fram á nótt við spil þeirra Þórunnar Snorradóttir og Jóns Hallfreðs Engilbertssonar. Páll Önundarson var á staðnum og tók það meðfylgjandi myndir.