13.07-15.07.2007 – Tuttugasta Sæluhelgi Súgfirðinga tókst með eindæmum vel og að sögn Ævars Einarssonar, yfirmansavinar, var langt síðan veðrið hefur verið betra yfir hátíðina. Talið var um 900 manns á svæðinu á lokadegi hátíðarinnar sem er nokkuð mikill fjöldi fyrir ekki fjölmennari bæ en Suðureyri. Sæluhelgin hófst að vanda með frumsýningu Hallvarðar Súganda sem að þessu sinni tók fyrir ævintýrið Galdrakarlinn í Oz. Þá fór fram tuttugasta mansakeppnin, sem af mörgum er talin vera hápunktur hátíðarinnar, og var hún stærri í sniðum vegna 20 ára afmælis hennar. Aðrir fastir liðir voru á sínum stað og lauk hátíðinni með sæluslútti og tilheyrandi elddansi. Ljósmyndarinn Páll Önundarson lét sig ekki vanta á hátíðina.