Myndayfirlit

Góublót Súgfirðinga

21.02 2009 – Mikil stemmning var á góublóti Súgfirðinga laugardagskvöldið 21. febrúar þar sem 165 manns skemmtu sér saman. „Eins og sagt er í hvert sinn þá var þetta besta blótið til þessa. Góð stemmning og góð mæting á okkar vísu“, segir Óðinn Gestsson í skemmtinefnd. Blótið var haldið á ný í félagsheimilinu en það hefur farið fram í íþróttahúsinu undanfarin ár. „Það var fínt að koma aftur í félagsheimilið þótt hinn staðurinn hefði verið fínn líka, en þetta var einhvern veginn heimilislegra“, segir Óðinn. Aðspurður hvað hafi staðið upp úr í skemmtiatriðum segist Óðinn ekkert vilja segja til um það. „Þetta var bara einnar nætur sýning sem menn munu lifa á næstu tvö árin. Ég held að flestir hafi farið á kostum og margur leikarinn hafi brotist fram og leyndir draumar verið uppskornir þetta kvöld.“ Að gömlum súgfirskum sið halda karlar góublót annað hvert ár og konur á Suðureyri þorrablót. Var þetta í sjötugasta og fjórða sinn sem haldið er blót á Suðureyri og þrítugasta og sjöunda sinn sem karlar halda góublót. Á blótið koma allir með sinn þorramat í trogum, en reynt er að halda góublót í kringum síðasta dag þorra. Að loknu borðhaldi spilaði vestfirska hljómsveitin Kraftlyfting fyrir dansi fram á rauða nótt. „Þetta eru snyrtilegir ungir menn og það sem ég sá af þeim fóru þeir á kostum“, segir Óðinn. Páll Önundarson mætti á blótið og tók þar meðfylgjandi myndir.

0A2E1731.jpg
0A2E1745.jpg
0A2E1748.jpg
0A2E1749.jpg
0A2E1753.jpg
0A2E1759.jpg
0A2E1766.jpg
0A2E1767.jpg
0A2E1781.jpg
0A2E1783.jpg
0A2E1788.jpg
0A2E1790.jpg
0A2E1791.jpg
0A2E1795.jpg
0A2E1796.jpg
0A2E1797.jpg
0A2E1804.jpg
0A2E1806.jpg
0A2E1808.jpg
0A2E1809.jpg
0A2E1811.jpg
0A2E1812.jpg
0A2E1817.jpg
0A2E1819.jpg
0A2E1823.jpg
0A2E1824.jpg
0A2E1826.jpg
0A2E1829.jpg
0A2E1837.jpg
0A2E1844.jpg
0A2E1845.jpg
0A2E1850.jpg
0A2E1859.jpg
0A2E1866.jpg
0A2E1882.jpg
0A2E1900.jpg
0A2E1919.jpg
0A2E1928.jpg
0A2E1946.jpg
0A2E1957.jpg
0A2E1973.jpg
0A2E1980.jpg
0A2E2025.jpg
0A2E2032.jpg
0A2E2041.jpg
0A2E2070.jpg
0A2E2073.jpg
0A2E2087.jpg

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli