Myndayfirlit

Súgfirðingar blótuðu þorra

Súgfirðingar blótuðu þorra í þétt setnu félagsheimilinu á Suðureyri á laugardagskvöld. Hefð er fyrir því á Suðureyri að konur á staðnum standi fyrir þorrablóti annað hvert ár og svara karlarnir fyrir sig hin árin með góublóti. Súgfirðingar gerðu krásum troganna góð skil og sungu undir borðum á milli. Þá var salurinn rýmdur og tekið til við skemmtidagskrá sem konurnar fluttu við góðar undirtektir blótsgesta. Dúettinn Baldur og Margrét sá svo um að leika fyrir dansi fram eftir nóttu. Ýmsar reglur eru í gildi um það hverjir fái aðgang að þorrablótinu. Að sögn Ingibjargar Sigfúsdóttur, eins skipuleggjenda, er almenna reglan sú að gestir skulu vera sambúðarfólk og hafa náð 25 aldri en einhleypir, 18 ára og eldri, fá að mæta í fylgd foreldra. Reglurnar standa á gömlum merg en Ingibjörg segir 68 ár frá því þorra- og góublót Súgfirðinga hófu göngu sína. Páll Önundarson var á staðnum og tók það meðfylgjandi myndir.

mynd40211b7a7cadd.jpg
mynd40211b9b33702.jpg
mynd40211bb1d7039.jpg
mynd40211bed24ccb.jpg
mynd40211c006443d.jpg
mynd40211c1509f00.jpg
mynd40211cbab4d4d.jpg
mynd40211cd4a14cd.jpg
mynd40211d193fa52.jpg
mynd40211d5024d68.jpg
mynd40211d6deab13.jpg
mynd40211d814969f.jpg
mynd40211da8a89fe.jpg
mynd40211dd0b7462.jpg
mynd40211de1e61de.jpg
mynd40211df58671e.jpg
mynd40211e0b2c1da.jpg
mynd40211e278400e.jpg
mynd40211e59a62fb.jpg
mynd40211e68029bd.jpg
mynd40211e7f5cf23.jpg
mynd40211e959788d.jpg
mynd40211ea750bbf.jpg
mynd40211ecf50bcd.jpg
mynd40211ee195190.jpg
mynd40211ef8e0c6e.jpg
mynd40211f35be9ae.jpg
mynd40211f4fe338c.jpg
mynd40211f8a5f634.jpg
mynd40211fb3a14cd.jpg
mynd40211fcd72eb0.jpg
mynd40211ff2c37ad.jpg
mynd4021202729c82.jpg
mynd40212052be9aa.jpg
mynd4021206ccacdd.jpg
mynd4021207f35e12.jpg

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli