Nærri tvö hundruð manns skemmtu sér saman á góublóti Súgfirðinga á laugardagskvöld og eru það heldur fleiri en hafa verið að koma saman til blótshalds þar undanfarin ár. Að gömlum súgfirskum sið halda karlar góublót annað hvert ár og konur á Suðureyri þorrablót. Var þetta í sjötugasta og annað sinn sem haldið er blót á Suðureyri og þrítugasta og sjötta sinn sem karlar halda góublót. Á blótið koma allir með sinn þorramat í trogum, en reynt er að halda góublót í kringum síðasta dag þorra. Á borðhaldinu voru flutt þrjú minni. Minni Íslands sem Þröstur Óskarsson flutti, minni kvenna sem Ingólfur Þorleifsson flutti og minni Súgandafjarðar sem Einar ómarsson flutti. Fyrsta þorrablótið í Súgandafirði héldu konur árið 1936 og buðu mönnum sínum til veislu. Árið eftir svöruðu karlar fyrir sig með góublóti. Síðan hafa karlar og konur haldið þessi blót til skiptis. Páll Önundarson var á blótinu og tók þar meðfylgjandi myndir.