02.02 2008 – Súgfirskar konur buðu bændum sínum á þorrablót 2 febrúar. Venja er að karlar og konur í Súgandafirði skiptist á að halda blótið og til skiptis í Þorra og Góu. Blótið var með hefðbundnu sniði, sungið var minni karla og kvenna undir borðhaldi en að því loknu var gert hálftíma hlé á skemmtuninni meðan fólk kom trogum sínum heim og bjó sig undir nóttina. Því næst buðu konurnar upp á skemmtiatriði, svokallaðan kabarett sem er eins konar áramótaskaup þeirra Súgfirðinga, spéspegill á atburði þá sem orðið hafa frá síðasta blóti. Var af nógu að taka og urðu margir íbúar fjarðarins að aðhlátursefni þetta kvöld. Þegar menn höfðu hlegið sig máttlausa var stólum rutt til hliðar í íþróttahúsi staðarins og dansað fram á nótt undir tónlist Halla og Þórunnar. Páll Önundarson var meðal blótsgesta og tók meðfylgjandi myndir.