Hér er að finna myndir eftir ljósmyndara Bæjarins besta sem nota má sem skjámynd á tölvu. Athugið að óheimilt er að nota myndirnar í annað eða breyta þeim. Veljið þá stærð sem fer næst skjáupplausn og mun þá birtast nýr gluggi með myndinni. Þegar myndin er að fullu komin á skjáinn er smellt á hana með hægri músarhnappnum og skipunin "Set as Wallpaper" valin. Macintosh-notendur velja skipunina "Save this Image as..." til þess að vista myndina í viðeigandi möppu á ræsidisknum og nota forritið Skjáborðsmyndir til þess að velja rétta mynd. Til að sjá skjáupplausn í Windows er smellt með hægri hnappi á skjáborðið, Properties valið og síðan smellt á Settings-flipa.