Eldra efni

mbl.is | 03.11.11 | 10:11 Fjögurra bíla árekstur

Fjögurra bíla árekstur varð á Reykjanesbraut við Sprengisand rétt fyrir klukkan 8 í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá arekstur.is kvartaði einn ökumaður undan eymslum og einn bíll var óökufær. Á gatnamótum Víkurvegar og Þúsaldar varð mjög harður árekstur og báðir bílar óökufærir, ökumenn kvörtuðu undan eymslum.
Meira

mbl.is | 03.11.11 | 09:02Vilja efla fræðslu og forvarnir gegn einelti

Skólastjórafélagi Íslands og Félag grunnskólakennara hvetur til þess að fræðsla og forvarnir gegn einelti verði efldar. Þeir hvetja jafnframt til þess að fréttaflutningur af eineltismálum í skólum verði vandaður. Vekja skuli athygli á þeim á réttum stöðum.
Meira

mbl.is | 03.11.11 | 08:58 Steinolían verður skattlögð

Í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum er m.a. lagt til að steinolía verði skattlögð eins og gas- og dísilolía. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mun mæla fyrir frumvarpinu á Alþingi í dag. Í greinargerð með frumvarpinu segir m.a.: „Í kjölfar hækkandi eldsneytisverðs hefur borið á því að steinolía sé í ...
Meira

mbl.is | 03.11.11 | 08:21 Fór út af á Hellisheiði

Fólksbíll ók út af veginum yfir Hellisheiði um klukkan 01.35 í nótt. Ökumaður var einn í bílnum og meiddist ekki. Mikið slabb var á veginum og vond færð. Bíllinn var ekki á mikilli ferð en flaut upp og varð stjórnlaus. Snörp vindhviða ýtti bílnum af veginum og endaði hann nokkuð langt ...
Meira


mbl.is | 02.11.11 | 16:51 Réðist ítrekað á sambýliskonu sína

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 6 mánaða fangelsi fyrir að ráðast í tvö skipti á barnsmóður sína og veita henni áverka. Maðurinn ógnaði konunni m.a. með hnífi og hótaði að drepa hana. Fólkið bjó saman frá árinu 2001 þar til í byrjun október 2010 þegar konan flutti af heimili þeirra. ...
Meira

mbl.is | 02.11.11 | 16:02 Eldri borgarar ósáttir við lokun

Stjórn Félags eldri borgara í Hafnarfirði mótmælir harðlega þeirri ákvörðun velferðarráðherra að loka St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Er þetta í samræmi við ályktun félagsins þar sem einnig sagði að ekki væri forsvaranlegt að draga Hafnfirðinga endalaust á loforðum um framkvæmdir í öldrunarmálum. Málið var tekið fyrir á fundi fjölskylduráðs Hafnarfjarðar í ...
Meira


mbl.is | 02.11.11 | 15:03 12% stunda svarta starfsemi

Um 12% lítilla og meðalstórra fyrirtækja í landinu að meðaltali stundar svarta atvinnustarfsemi. Glötuð verðmæti vegna þess nema ríflega 13,8 milljörðum króna. Þetta eru niðurstöður samstarfsverkefnis Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og ríkisskattstjóra. Af þessum rúmu 13 milljörðum króna má áætla að glötuð réttindi launafólks nemi tæplega 8 milljörðum króna. Í kjöllfar ...
Meira

mbl.is | 02.11.11 | 14:03 Lögreglumaður dæmdur fyrir líkamsmeiðingar

Lögreglumaður sem ók á ölvaðan ökumann sem hann veitti eftirför í fyrra var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi í dag. Þarf hann að greiða 150 þúsund krónur í sekt auk um 400 þúsund króna í málsvarnarlaun verjanda síns. Atvikið átti sér stað þann 22. ágúst í fyrra. Samkvæmt ...
Meira


mbl.is | 02.11.11 | 13:20 Rannsóknir á öldruðum styrktar

Stjórn Öldrunarráðs Íslands veitti í dag þremur aðilum rannsóknarstyrki úr styrktarsjóði ráðsins vegna rannsókna í öldrunarmálum. Öldrunarráð veitir árlega styrki til rannsókna í málaflokknum. Dr. Ársæll Arnarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri og Erasmus-prófessor við taugafræðideild Sahlgrenska Háskólasjúkrahússins í Gautaborg, fékk rannsóknastyrk að upphæð 300 hundruð þúsund krónur úr Rannsóknarsjóði Öldrunarráðs ...
Meira

mbl.is | 02.11.11 | 12:02 Reynt að svíkja fé út úr fjarskiptafyrirtækjum

Vodafone hefur hert reglur um sölu á SIM-kortum og Frelsisinneignum vegna tilrauna manna til að svíkja fé út úr fjarskiptafyrirtækjum. Hefur málið verið kært til lögreglu. Fram kemur í tilkynningu, sem Vodafone hefur sent söluaðilum á Vodafone Frelsi, að undanfarið hafi nokkrir söluaðilar orðið varir við óvenjuleg viðskipti með SIM-kort (startpakka) ...
Meira


mbl.is | 02.11.11 | 10:03 Spá 6% atvinnuleysi á næsta ári

Seðlabankinn spáir því að atvinnuleysi verði rétt yfir 6% meginhluta næsta árs og að það verði komið í um 5% á seinni hluta spátímans, spáin nær til ársloka 2014, sem er lítillega meira atvinnuleysi en spáð var í ágúst, enda vöxtur launakostnaðar heldur meiri á seinni hluta spátímans. Atvinnuleysi, eins og ...
Meira

mbl.is | 02.11.11 | 09:03 Krafðist þess að yfirmenn yrðu reknir

Árni Johnsen alþingismaður sagði á þingi í gær að reka ætti yfirmenn Flugmálastjórnar ef þeir héldu áfram að túlka reglur um loftferðaeftirlit með óbreyttum hætti. Hann sagði að þeir væru kaþólskari en páfinn þegar kæmi að því að túlka reglurnar. Nú væri svo komið að stórum hluta minni flugvéla á Íslandi ...
Meira


mbl.is | 01.11.11 | 16:56 Kirkjugarður verði grafreitur

Í drögum að lagafrumvarpi um kirkjugarða, sem nú er til umsagnar, er meðal annars lagt til að heiti laganna verði breytt þannig að orðið „grafreitur“ komi þar fyrir, enda kirkjugarðar einungis garðar þar sem kirkju er að finna. Þá er lagt til að í nýjum kirkjugörðum verði skylt að gera ráð ...
Meira

mbl.is | 01.11.11 | 15:06 Mest jafnrétti á Íslandi

Bilið á milli kynjanna er minnst á Íslandi samkvæmt lista sem Alþjóðaefnahagsráðið (World Economic Forum) hefur gefið út. Næst á eftir eru Norðmenn, Finnar, Svíar og Írar. Í skýrslu ráðsins kemur fram að konur standi nærri jafnfætis körlum í heilbrigði og menntun í heiminum en enn vanti upp á í efnahagslegri- ...
Meira


mbl.is | 01.11.11 | 14:08 Í fangelsi í 1½ ár

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt fimmtugan karlmann í fangelsi í 1½ ár fyrir stórfelld fíkniefnabrot, þar á meðal fíkniefnasölu og ræktun á kannabisplöntum. Maðurinn var ákærður fyrir því að hafa tekið við samtals 1 kílói af amfetamíni og 400 grömmum af hassi á árunum 2006 til 2010 af ónafngreindum manni og ...
Meira

mbl.is | 01.11.11 | 11:58 Vilja tryggja velferð hreindýra

Bæjarráð Hornafjarðar segir að ríkur vilji sé til þess að tryggja velferð hreindýra en um leið að takmarka tjón bænda vegna ágangs þeirra eins og kostur er. Það áréttar að bændir fjarlægi ónýtar girðingar og gangi þannig frá öðrum girðingum að þær valdi hreindýrum sem minnstri hættu. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri ...
Meira


mbl.is | 01.11.11 | 11:06 Harma slys á Dalvegi

Landssamtök hjólreiðamanna harma hið hræðilega slys sem varð á Dalvegi í Kópavogi nýverið og benda á að mikilvægt sé að ökumönnum sé grein fyrir ábyrgð sinni og að alltaf þurfi að gæta að umferð hjólandi á götu eða stíg. Þetta kemur fram í tilkynningu sem landssamtökin hafa sent frá sér. „Landssamtök ...
Meira

mbl.is | 01.11.11 | 10:09 Eldur í sjónvarpi í Kópavogi

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir klukkan 23.00 í gærkvöldi vegna elds í sjónvarpi í blokkaríbúð í Kópavogi. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var búið að taka sjónvarpið úr sambandi og koma því út á svalir. Þá var búið að lofta út svo ekki þurfti að reykræsta íbúðina.
Meira


mbl.is | 01.11.11 | 08:04 Vandamál barna í neyslu eru að aukast

„Tilfinning okkar er að neysla barna sé að aukast og að vandamálin séu umfangsmeiri,“ segir Guðbjörg Erlingsdóttir, unglingaráðgjafi hjá Foreldrahúsinu, sem veitir ráðgjöf vegna vímuefnavanda ungmenna. Guðbjörg segir að bið eftir að komast á meðferðarstofnanir hafi lengst og þar af leiðandi séu krakkarnir lengur úti í neyslu. Hún segist óttast að ...
Meira

mbl.is | 31.10.11 | 16:03 Minnst tvær hópuppsagnir í október

Vinnumálastofnun hafa borist tvær hópuppsagnir fyrir októbermánuð 2011. Um er að ræða uppsagnir í byggingariðnaði og upplýsingatækni. Alls missir á sjöunda tug manna vinnuna í þessum tveimur uppsögnum. Frestur til að tilkynna hópuppsögn í október rennur út í dag og gæti því enn bæst við. Alls hafa tæplega 700 manns nú ...
Meira


mbl.is | 31.10.11 | 15:05 Saka lögregluna um offors

Mótmælendur sem tjölduðu á Austurvelli í nótt saka lögregluna um að fara fram með offorsi þegar hún tók niður tjald þeirra í morgun og ekki gefið þeim kost á að taka það niður sjálfir. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, segir þetta rangt og að þeir hafi verið margbeðnir um að opna tjaldið. ...
Meira

mbl.is | 31.10.11 | 14:07 170 nemendur komast í starfsnám

Alls bárust 65 umsóknir frá fyrirtækjum og stofnunum til mennta- og menningarmálaráðuneytið til vinnustaðanáms. Alls er úthlutað 57 milljónum krónum í styrki til umsækjenda og munu um 170 nemendur njóta góðs af. Um er að ræða styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað á ...
Meira



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli