Öðruvísi menn
Vinirnir Guðjón Dalkvist Gunnarsson á Reykhólum, ævinlega nefndur Dalli í Mýrartungu, og Stefán Hafþór Magnússon á Seljanesi í Reykhólasveit, þykja heldur skera sig úr fjöldanum vegna útlits, hegðunar og skringilegra uppátækja. Báðir vinna þeir félagar í Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum.Meira
Að kaupa blóm
Snemma á tíunda áratug nýliðinnar aldar átti Reynir Torfason, listamaður og fyrrum sjómaður á Ísafirði, leið niður Hafnarstrætið á Ísafirði á bifreið sinni, sem var af gerðinni Lada Sport, rauð að lit í stíl við stjórnmálaskoðanir eigandans. Fljúgandi hálka var enda þykkir svellbunkar með djúpum hjólförum niður þessa fjölförnu götu.Meira
Litli og stóri
Ólafur Helgi Kjartansson, fyrrum sýslumaður Ísfirðinga um langa hríð, er með allra minnstu mönnum vexti eins og alþjóð mun kunnugt. Hann tók við sýslumannsembætti Selfyssinga í byrjun þessa árs. Því embætti hafði áður gegnt sómamaðurinn Andrés Valdimarsson sem lengi var sýslumaður Strandamanna og hvers manns hugljúfi. Andrés er gríðarstór maður, um ...Meira
Forboðin kjötvara
Ólafur Helgi Kjartansson, fyrrum sýslumaður á Ísafirði, er ættaður norðan úr Aðalvík og hefur því ákaflega ríkan skilning á menningarheimi útkjálkamanna. Meðan Ólafur Helgi var sýslumaður Ísfirðinga bjó hann í embættisbústað við Urðarveg 47. Nokkru utar við sömu götu, eða í húsinu númer 37, býr Konráð Eggertsson hrefnuveiðimaður, mikið náttúrubarn.Meira
Kynlífsbindindið
Eitt sinn fékk Konráð Eggertsson hrefnuveiðimaður á Ísafirði mikla bakverki og gat sig varla hreyft í nokkra daga. Mikill vinur Konna er Jóhannes Kristjánsson, eftirherma frá Brekku á Ingjaldssandi, og frétti hann af þessum bakraunum vinar síns.Meira
Selveiðitúrinn
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar í Hnífsdal, og Rósmundur Skarphéðinsson, stýrimaður á Ísafirði, eru miklir vinir. Þeir félagar eru miklir veiðimenn og náttúrubörn og fara t.d. á hverju vori til eggja norður í Hornbjarg og Hælavíkurbjarg.Meira
Veraldarauður
Rækjukóngarnir Böðvar heitinn Sveinbjörnsson og Sæmundur Árelíusson voru báðir miklir áhrifamenn í rækjubransanum á mestu uppgangstímum rækjuveiða og vinnslu á Ísafirði. Í þessari grein sjávarútvegsins gekk jafnan mikið á. Stundum voru menn flugríkir en aðra stundina skítblankir og þá háðir misvinveittum bankastjórum. Á einu uppgangstímabilinu hittust þeir Böðvar og Sæmundur á ...Meira
Mannlýsing
Ketill heitinn Guðmundsson var lengi kaupfélagsstjóri Kaupfélags Ísfirðinga á uppgangsárum þess, þá er kratar réðu öllu á Ísafirði. Ketill var bróðir Haralds Guðmundssonar, ráðherra og formanns Alþýðuflokksins, en faðir þeirra bræðra var séra Guðmundur Guðmundsson frá Gufudal, sá er stofnaði blaðið Skutul á Ísafirði og var guðfaðir gullaldar jafnaðarstefnunnar þar í ...Meira
Tveir slæmir kostir í lífinu
Matthías Bjarnason var samgönguráðherra þegar Arnarflug sáluga byrjaði að fljúga á Hamborg. Þetta var í apríl árið 1986. Hópi fyrirmanna var að sjálfsögðu boðið í ferðina. Á meðal þeirra var ungur ritstjóri Þjóðviljans, Össur Skarphéðinsson, sem þá var að stíga sín fyrstu skref í pólitíkinni. Þeir Matthías þekktust ekkert áður. Þegar ...Meira
Að tala of mikið
Séra Gunnar Björnsson, eitt sinn sóknarprestur í Bolungarvík, þótti langorður í predikunarstólnum, ólíkt þáverandi prófasti í Ísafjarðarprófastsdæmi. Fannst kirkjugestum að prestur ætti stundum erfitt með að ljúka ræðum sínum. Sigríður Norðquist, organisti við Hólskirkju í Bolungarvík en síðar kirkjuvörður við Hallgrímskirkju í Reykjavík, var leikin í því að spila á orgelið ...Meira
Stýrimannsstörfin
Á m/s Karlsey, skipi Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, voru um tíma Björgvin Ólafsson stýrimaður og Vaka Ólafsdóttir matsveinn, bæði á Reykhólum. Voru þau í sambúð. Þá er þau létu af störfum tóku við Jón Þorvarðarson, sem varð stýrimaður, og Jón Árni Sigurðsson, sem tók við sem matsveinn. Jón sem ævinlega var kallaður ...Meira
Óvæntur söngvari
Á þorrablóti á Reykhólum fyrir nokkrum árum var spilað lag af geisladiski með Álftagerðisbræðrum og þorrablótsnefndin þóttist syngja með, meðal annarra Matthías Ólason á Hamarlandi. Kallast slíkt athæfi „karókí“.Meira
Að trúa
Guðmundur Hraunberg Egilsson, meðhjálpari við Hólskirkju í Bolungarvík í áratugi, starfaði þar með fjórum prestum: Sr. Þorbergi Kristjánssyni, sr. Gunnari Björnssyni, sr. Jóni Ragnarssyni og sr. Sigurði Ægissyni. Öllum bar þessum prestum saman um, að ágætari meðhjálpari en Hraunberg væri vandfundinn. Kom þar til áhugi hans og samviskusemi í hvívetna. Hraunberg ...Meira
Að kveðja söfnuðinn
Vorið 2002 urðu prestaskipti á Selfossi í Árnesprófastsdæmi. Séra Þórir Jökull Þorsteinsson hvarf frá embætti sóknarprests og gerðist prestur Íslendinga í Kaupmannahöfn, en við tók séra Gunnar Björnsson, áður prestur í Bolungarvík og Holti í Önundarfirði.Meira
Hræðan í garðinum
Jón Kjartansson, kaupmaður í Arnhóli á Reykhólum, var um tíma í kartöflurækt. Eitt sinn kom sölumaður til Ingibjargar Sæmundsdóttur, eiginkonu hans, og vildi selja henni fuglahræðu. Mikil þörf er fyrir hræður í æðarvarpinu í eyjum og varphólmum Breiðafjarðar til að fæla vargfuglinn burt.Meira
Hugkvæmni kálfsins
Þegar Byggðalínan svokallaða („hundurinn að sunnan“) var lögð vestur í Mjólkárvirkjun hafði línuflokkurinn um tíma aðsetur í skúrabúðum í Skálmarfirði. Í grennd við búðirnar var komið ófært drulluslark í þjóðveginn.Meira
Ótemjur
Halldór Gunnarsson í Múla í Gilsfirði, þekktur hesta- og tamningamaður, stjórnaði lengi stórgripaslátrun í sláturhúsi Kaupfélags Króksfjarðar í Króksfjarðarnesi. Dýralæknirinn í Búðardal sá svo um að öllum heilbrigðiskröfum væri fullnægt.Meira
Sjómannadagsfrí
Á mánudegi eftir sjómannadag er skipum venjulega ekki haldið úr höfn fyrr en eftir hádegi. Gylfi Helgason, skipstjóri á m/s Karlsey, skipi Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, var að ræða þessa tilhögun við Björk Bárðardóttur, gjaldkera verksmiðjunnar, og sagði að þetta væri eini dagur ársins sem hann fengi frí til að láta renna ...Meira
Sparsemi
Sigurður Bjarnason, kaupfélagstjóri í Króksfjarðarnesi, er bæði hagsýnn og sparsamur með endemum. Hilmar Óskarsson, rafvirki frá Búðardal, sér um allar nýlagnir og viðhald á rafmagni í húsum Kaupfélagsins, þar á meðal sláturhúsinu. Þegar hann er að vinna fyrir Sigga er ævinlega viðkvæðið hvort ekki sé hægt að lækka reikningana með því ...Meira
Geðveikt fyndið
Yngsta kynslóðin, sem á að erfa landið, kemur sér jafnan upp sínum eigin áhersluorðum. Snillingurinn Sigmund í Vestmannaeyjum hefur um árabil teiknað af séra Gunnari Björnssyni, fyrrum presti í Bolungarvík og Holti í Önundarfirði, gamanmyndir sem birst hafa í Morgunblaðinu. Prestur hefur rammað þær inn og vegna skorts á veggplássi á ...Meira
Listflugið
Þórólfur Magnússon flugstjóri frá Drangsnesi á Ströndum, sem lengi flaug áætlunarflug norður á Hólmavík og Gjögur, var stundum að leika sér og sýna kúnstir á listflugvélum. Hann hafði einnig gaman af að stríða vinum sínum í flugturninum í Reykjavík og koma þeim á óvart.Meira
Ónýta skakrúllan
Guðbjartur Jónsson, „vagnstjóri“ á Flateyri, var ásamt öðrum að skoða bilaða handfærarúllu um borð í bát. Varð þeim fljótlega ljóst að rúllan var ónýt.Meira
Baktal
Á meðan Guðbjartur „vagnstjóri“ Jónsson rak Vagninn á Flateyri, seldi hann mat kostgöngurum jafnt sem gestum og gangandi. Sumar eitt kom burtfluttur Flateyringur, Grétar Snær Hjartarson, inn á Vagninn laust eftir hádegið og var Guðbjartur þá að taka til eftir matinn.Meira
Beitningamaðurinn
Guðbjartur vagnstjóri Jónsson á Flateyri var eitt sinn fenginn til að leysa af í beitningu í Bolungarvík og tók hann ekki í mál að fara upp á annað en beita tíu bala á dag. Fyrsta morguninn mætti Guðbjartur klukkan níu. Landformaðurinn tók óblíðlega á móti honum og gerði honum það ljóst ...Meira
Ákvörðunarstað náð
Þrjú skip sem öll hétu Fagranes þjónuðu lengi bændum í Ísafjarðardjúpi, hvert á eftir öðru. Á miðskipinu með Fagranesnafninu háttaði þannig til, að þar sem stýrimaðurinn hafði talsvert að gera í pappírsvinnu tók háseti að nokkru leyti að sér stímvaktirnar á móti skipstjóranum í Djúpferðunum.Meira
Siglingafræði
Fagranesið gamla strandaði við Arnarnes í byrjun níunda áratugar nýliðinnar aldar en náðist út óskemmt með öllu. Eftir þetta var Líndal heitnum Magnússyni, Dalla, ekki rótt á stíminu, sérstaklega þegar hríð var á, náttmyrkur og vont veður.Meira
Kvennamaðurinn mikli
Síðastliðið haust, seint í október, fóru þeir feðgar Aðalsteinn Sveinsson frá Ísafirði og Gísli Sveinn sonur hans til rjúpna inn í Ísafjörð í Djúpi, í land Gjörfudals. Veiddu þeir vel og héldu um kvöldið út í Reykjanes þar sem ákveðið hafði verið að gista og halda svo aftur til veiða daginn ...Meira
Dýptarmælingar
Gísli Hjartarson, ritstjóri og leiðsögumaður á Ísafirði, hefur manna mest stundað fararstjórn í óbyggðunum norðan Ísafjarðardjúps og víðar um Vestfirði. Hefur Gísli komið sér upp ákveðnu orðalagi um dýpt vatnsfalla sem hann þarf að vaða yfir með ferðahópa. Til dæmis kallar hann að það sé „upp í öxul“ ef vatnið nær ...Meira
Að skjóta skrattann …
Síðasta haust fóru þeir feðgar Aðalsteinn Sveinsson, blikksmiður á Ísafirði, og Gísli Sveinn sonur hans eitt sinn sem oftar til rjúpna inn í Djúp. Eftir erfiðan dag á fjöllum lentu þeir í veislu í Reykjanesi ásamt fjölda fólks sem þar var statt. Þar var einnig séra Baldur Vilhelmsson fyrrverandi prófastur í ...Meira
Að snúa á lögguna
Fyrirtækið Hlaðbær Colas hf. í Hafnarfirði annaðist á sínum tíma lagningu malbiks í Vestfjarðagöngunum. Stjórnarformaður malbikunarfyrirtækisins er Gunnlaugur M. Sigmundsson, sem þá var jafnframt þingmaður Framsóknarflokksins á Vestfjörðum.Meira
Kaupfélagslæsingar
Séra Baldur Vilhelmsson, fyrrum prófastur í Vatnsfirði, hefur átt nokkra jeppa um ævina, enda nauðsynlegt að hafa jeppa til að þjóna svo víðfeðmum og torfærum sóknum sem lágu undir Vatnsfjörð.Meira
Hagnaður
Jóhann Ásgeir Jónsson, fatlaður drengur á Ísafirði sem lést fyrir nokkrum árum, einungis sautján ára gamall, var afar orðheppinn, alveg ófeiminn, og setti svip á mannlífið á Ísafirði. Hann var hvers manns hugljúfi. Jóhann blessaður skildi og túlkaði hlutina út frá sínum eigin forsendum. Hann horfði mikið á sjónvarp, jafnt á ...Meira
Jarðarsalan
Við Alþingiskosningarnar 1974 voru þeir Sighvatur Björgvinsson og Vilmundur heitinn Gylfason í framboði í tveimur efstu sætum á lista Alþýðuflokksins á Vestfjörðum. Báðir voru í fyrsta sinn í framboði til þings. Á þessum tíma vann í fjármálaráðuneytinu Höskuldur Jónsson frá Vonarlandi í Djúpi, bróðir Kristins Jóns Jónssonar, fyrrum rekstrarstjóra Vegagerðarinnar og ...Meira
Eineygður á báðum
Ísfirðingurinn Torfi Steinsson, skólastjóri í áratugi í Krossholti á Barðaströnd, horfir á heiminn einungis með öðru auganu. Hann varð fyrir því óláni á barnsaldri að hlaupa á gaddavír og hafði það þau áhrif að hann missti annað augað.Meira
Uppstillingin
Á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins á Vestfjörðum var unnið að uppstillingu á framboðslista fyrir Alþingiskosningarnar 1979. Var víða leitað fanga til að fá nýtt fólk á listann, en sitt sýndist hverjum um ágæti þeirra er stungið var upp á.Meira
Þolgóður þingmaður
Gunnlaugur M. Sigmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins á Vestfjörðum, var á yfirreið um kjördæmið og kom á Suðureyri á um miðjan dag á laugardegi. Í ESSO-sjoppunni settist hann niður og spjallaði við sjómenn sem þar voru staddir.Meira
Friðgeir og skatturinn
Friðgeir heitinn Hrólfsson, sem rak vélsmiðju á Ísafirði um árabil, var gamansamur maður. Hann átti lengi í útistöðum við Skattstofuna á Ísafirði, sem vildi ekki viðurkenna allan rekstrarkostnað á framtali vélsmiðjunnar. Lyktaði þeirri viðureign þannig að Friggi flutti lögheimili sitt til Reykjavíkur til að þurfa ekki að telja fram á Ísafirði.Meira
Virðing fyrir námi
Kjartan Sigmundsson frá Hælavík á Hornströndum, eggja- og rækjukarl á Ísafirði, var við eggjatöku í Hornbjargi vor eitt fyrir allmörgum árum eins og svo oft fyrr og síðar. Hafði hann með sér syni sína tvo, þá Hallgrím (Lalla lækni á Ísafirði) og Davíð.Meira
Bjargferðin
Kjartan Sigmundsson frá Hælavík fór eitt sinn sem oftar til eggja í Hælavíkurbjarg. Með honum var Páll heitinn Friðbjarnarson frá Sútarabúðum í Grunnavík sem seinna bjó í Hnífsdal. Palli sagði síðar frá því að mikil bleyta og rigning hefði verið þennan dag. Páll var óvanur bjargmaður þegar þetta var og treysti ...Meira
Passleg föt
Karl Steinar Guðnason, fyrrum alþingismaður og varaformaður Verkamannasambands Íslands, nú forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, var í sumar á yfirreið um Vestfirði að heimsækja umboð TR í kjördæminu, þar á meðal umboðið á Ísafirði. Með Karli Steinari voru þrír yfirmenn í TR.Meira
Flokkur framliðinna
Haustið 1994 hélt Framsóknarflokkurinn á Vestfjörðum prófkjör vegna þingkosninga vorið eftir. Í prófkjörinu tókust þeir á um fyrsta sætið, Gunnlaugur M. Sigmundsson og Pétur Bjarnason, og hafði Gunnlaugur betur eftir harða baráttu. Gunnlaugur ferðaðist um alla Vestfirði fyrir prófkjörið og kom þá m.a. á Bíldudal, sem álitinn var sterkt vígi Péturs.Meira
Steingrímur væri enn að reyna
Gunnlaugur M. Sigmundsson, fyrrverandi þingmaður Vestfjarða, æfði lyftingar af kappi meðan hann var þingmaður. Meðal frænda Gunnlaugs eru margir sterkir menn og má þar nefna til Strandamanninn sterka, Hrein Halldórsson frá Hrófbergi, og Magnús Bragason, bónda á Ósi í Steingrímsfirði og bleikjubónda á Nauteyri, en Magnús er talinn sterkastur manna í ...Meira
Atvinnuleysi yfirvofandi
Guðjón Dalkvist Gunnarsson, Dalli í Mýratungu, starfsmaður Þörungaverkmiðjunnar á Reykhólum, er mikill heimspekingur og hugsar gjarnan marga leiki fram í tímann. Í verksmiðjunni vinnur einnig Stefán Hafþór Magnússon á Seljanesi. Í vetur var Stebbi að dást að hæfileikum Dalla og spurði:Meira
Að ganga í stjórnmálaflokk
Árni Höskuldsson, gullsmiður við Bergstaðastræti í Reykjavík, er Ísfirðingur og fluttist suður, eins og fjöldi annarra, þegar hann var ungur maður. Eiginkona Árna er Ása dóttir Ketils kaupfélagsstjóra Guðmundssonar á Ísafirði. Ása er því af mikilli eðalkrataætt héðan að vestan.Meira
Að raða rétt í salinn
Á stofnfundi Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir tveimur árum var þar mættur eðalkratinn Gísli Hjartarson, ritstjóri Skutuls á Ísafirði. Eins og margir vita missti Gísli hægri handlegginn þá er hann var ungur maður og verið einhentur allar götur síðan. Hefur það síður en svo háð honum í lífsbaráttunni.Meira
Ráðstjórn
Á Bíldudal búa sómahjónin Hilmar Hauksson, laxeldismaður í Tálknafirði, og Hafdís R. Bragadóttir, í ákaflega hamingjusömu og kæru hjónabandi. Hilmar var eitt sinn að segja vinum sínum frá því, hvernig hættir væru á heimili þeirra hjóna.Meira
Lifað á landsins gæðum
Hálfdán Guðröðsson frá Kálfavík í Skötufirði í Djúpi (Dáni kálfur) er mikill veiðimaður og náttúrubarn. Eitt sinn á áttunda áratug síðustu aldar lagðist Dáni kálfur út, fór með heitkonu sína þáverandi inn í Kálfavík, sem þá var löngu komin í eyði og akvegur ekki kominn um Skötufjörð. Þar hugðist kálfurinn lifa ...Meira
Með afa
Ari Sigurjónsson frá Keldu í Vatnsfjarðarsveit í Djúpi, verkamaður hjá Ísafjarðarbæ, ritaði hugvekju í jólablað Skutuls á Ísafirði, sem kom út fyrir jólin árið 2000, þar sem hann minntist bernskujóla sinna í sveitinni. Þótti ritsmíðin ákaflega vel stíluð og hrærði hún hugi margra Djúpmanna er lásu. Með hugvekjunni í blaðinu birtist ...Meira
Lundabaggar og Svalbarðsmeyjar
Sverrir Hermannsson, alþingismaður og formaður Frjálslynda flokksins, og Gréta Kristjánsdóttir eiginkona hans, eiga sumarbústað í landi Kirkjubóls í Skutulsfirði og dveljast þau þar sumarlangt nú síðustu árin og í flestum fríum frá amstri alþingismannsins. Margrét dóttir þeirra, framkvæmdastjóri flokksins, á nú íbúðarhúsið á Kirkjubæ, skamman spöl frá Grund, sumarbústað foreldra sinna, ...Meira
Grillhanskinn
Séra Jón Ísleifsson, sem til skamms tíma var prestur í Árnesi á Ströndum, er athafnasamur og duglegur til allra búverka en ekki eftir því vinnulaginn. Einhverju sinni hafði losnað um lamir á hurð í prestsetrinu og féll hún því ekki að stöfum. Prestur ákvað að kippa þessu í lag og hóf ...Meira
Ástarsorgin
Séra Baldur Vilhelmsson, prófastur í Vatnsfirði í Djúpi, var eitt sinn að hugga sóknarbarn sitt, stúlku, sem var ákaflega hnuggin yfir brotthlaupi unnusta síns. Þegar stúlkan hafði sagt prófasti hverra manna unnustinn væri, þá vissi hann samstundis að unnustinn væri framsóknarmaður. Slíkir menn hafa aldrei verið í neinu uppáhaldi hjá séra ...Meira
Eldklerkurinn
Snemma á níunda áratug síðustu aldar var séra Baldur Vilhelmsson, prófastur í Vatnsfirði í Djúpi, að messa í Ögurkirkju á páskadag. Þegar messu var lokið og prófastur og söfnuður voru að kveðjast á kirkjuhlaði verður einhverjum kirkjugesta litið yfir á Garðsstaðaháls. Upp yfir hálsinn bar reykjarmökk mikinn eins og eldgos væri ...Meira
Allt upp í K
Guðjón Guðmundsson var bóndi á Eyri við Ingólfsfjörð á Ströndum. Hann var einnig hreppstjóri Árneshrepps í áratugi. Guðjón var afar orðheppinn maður og hafði útsmogið skopskyn. Á Eyri var símstöð og var það á þeim árum, þegar sveitasíminn var tengdur við stöðvarnar og öll samtöl milli héraða fóru gegnum þessar stöðvar. ...Meira
Að vera mátulega frómur
Sigurgeir Jónsson hét maður sem var um fimmtán ára skeið starfsmaður Kaupfélags Strandamanna í Norðurfirði í Árneshreppi á Ströndum. Sigurgeir var orðinn nokkuð fullorðinn þegar hann réðst til starfa hjá Kaupfélaginu. Ekki var hann vanur verslunarstörfum en hafði ævinlega langað til að kynnast þeim og við verslunarstörfin undi hann sér vel.Meira
Hættu, hættu, hættu
Axel Thorarensen á Gjögri og Jón Jens Guðmundsson á Munaðarnesi voru samtímamenn í Árneshreppi á Ströndum. Þeir áttu það sameiginlegt að báðir voru miklir veiðimenn. Þeir áttu báðir fyrir stórum barnahópi að sjá og dugði þar best byssan og öngullinn. Sýndu þeir við veiðarnar mikið harðfengi og gríðarlega þolinmæði. Veiðiskapurinn var ...Meira
Verkamenn og Seðlabankastjórar
Jón Reynir Sigurvinsson, jarðfræðingur og leiðsögumaður og fyrrum aðstoðarrektor við Menntaskólann á Ísafirði og varabæjarfulltrúi Framsóknar í Ísafjarðarbæ, átti leið um Hornstrandir sumarið 2001 ásamt ferðahópi sem hann var að ferðast með um svæðið.Meira
Sumir upp og aðrir niður
Þegar Jón Guðjónsson, bóndi á Laugabóli á Langadalsströnd í Djúpi, varð sjötugur 11. febrúar 1996, var boðað til veglegrar afmælisveislu að hætti stórbænda fyrri tíðar. Veitti Jón af rausn og voru guðaveigar bornar fyrir hvern sem vildi þiggja. Mættu til veislunnar allir helstu menn úr Inndjúpi og vinir Jóns víðs vegar ...Meira
Landbúnaðarstefna Denna
Þeir voru fjörugir framboðsfundirnir í Vestfjarðakjördæmi hér fyrr á árum og eru reyndar ekki nema svipur hjá sjón nú á dögum, þar sem allir reyna að vera góðir við alla. Einnig skortir mjög húmor í frambjóðendur nú á dögum. Eitt sinn voru þeir að karpa á fundi á Þingeyri, kempurnar Matthías ...Meira
Að bjóða upp í til sín
Í alþingiskosningunum 1974 fór Sighvatur Björgvinsson fyrst í framboð í Vestfjarðakjördæmi fyrir kratana. Vilmundur heitinn Gylfason var í öðru sæti og Bárður Halldórsson í því þriðja. Fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna voru þeir Karvel Pálmason og Jón Baldvin Hannibalsson. Allt sumarið höfðu menn verið að gera tilraunir til að sameina ...Meira
Áreynsla
Á fyrri hluta síðustu aldar bjó að Bæ í Króksfirði Ingimundur Magnússon, ættaður frá Hrófbergi í Steingrímsfirði. Hann var afabróðir Gunnlaugs M. Sigmundssonar, fyrrverandi þingmanns Vestfirðinga.Meira
Ég er krati!
Kjörtímabilið 1986 til 1990 var Kristján heitinn Jónasson, eðalkrati og óskoraður foringi ísfirskra krata, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðar. Með Kitta sat í bæjarstjórn margt ágætisfólk úr öllum flokkum, þar á meðal Sigrún Camilla Halldórsdóttir og Einar Garðar Hjaltason, sem sátu bæði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjórn.Meira
Síðasti fundur fyrir jól
Þegar Kristján heitinn Jónasson, krataforingi á Ísafirði, var forseti bæjarstjórnar seint á áttunda áratug síðustu aldar, var meirihluti bæjarstjórnar skipaður þremur krötum, einum framsóknarmanni og einum alþýðubandalagsmanni eða samtals fimm af níu bæjarfulltrúum. Sjálfstæðismenn sem sátu í minnihluta voru fjórir og var leiðtogi þeirra Ólafur Helgi Kjartansson, þá skattstjóri og seinna ...Meira
Lífgjafinn
Þá er Össur Skarphéðinsson, alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar, var 17 ára gamall, kom hann vestur á Ísafjörð og varð háseti á Kofra ÍS 41 frá Súðavík. Undir haust í haugabrælu voru skipverjar að taka inn trollið. Össur stóð við borðstokkinn og var að slá á belginn svo hægt væri hífa inn ...Meira
Drukkið út á stígvél
Í tíð ríkisstjórnar Alþýðuflokksins og Sjálfstæðismanna sem sat við völd 1991-95 var kempan Matthías Bjarnason formaður sjávarútvegsnefndar. Varaformaður hans var þá Össur Skarphéðinsson. Fór vel á með þeim Vestfirðingunum.Meira
Kvenmannsleysið
Eitt sinn varð hópur þingmanna veðurtepptur á Hótel Ísafirði. Notuðu menn tímann til að gleðjast og efla félagsandann fram eftir nóttu. Þegar leið á nóttina kom náttúran yfir framsóknarmennina og þeir spurðu félaga sína í hópnum, hvort það væru ekki neinar konur á þessu hóteli sem mætti ræða við pólitík. Matthías ...Meira
Harðfiskurinn
Guðrún Steinþórsdóttir, Steinþórssonar vélstjóra á Ísafirði og Valdísar Veturliðadóttur frá Úlfsá í Skutulsfirði, hefur að undanförnu verið búsett í Tékklandi ásamt fjölskyldu sinni. Hún kom fyrir nokkru í heimsókn í sumarhús foreldra sinna að Brekku í Dýrafirði. Þar komst hún í harðfisk sem var framleiddur af Ragnari Guðmundssyni og Snædísi G. ...Meira
Borg í rúst
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins um langa hríð og fyrrverandi utanríkisráðherra, er Ísfirðingur og var fyrsti rektor Menntaskólans á Ísafirði. Hann sat í bæjarstjórn Ísafjarðar fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna um skeið eða frá 1971 til 1974. Eins og allir vita þykir flestum Vestfirðingum gott í staupinu og var Jón ...Meira
Minni spámennirnir
Eitt sinn í sláturtíð snemma á tíunda áratug síðustu aldar hafði blaðamaður á Vestfirska fréttablaðinu samband við oddvita Nauteyrarhrepps, Ástþór Ágústsson í Múla í Ísafirði, til þess að afla frétta úr Inndjúpi. Fjölmiðlar höfðu undanfarið fjallað um kerlingu norður í landi sem spáði um tíðarfar með því að rýna í kindagarnir ...Meira
Kvennafar
Samúel heitinn Zakaríasson í Djúpadal í Gufudalssveit átti dóttur eina, Sigurdísi að nafni, og er hún nú gift kona í Súðavík. Saga þessi gerðist þegar Sigurdís var ógjafvaxta stúlka í foreldrahúsum í Djúpadal.Meira
Vinnueftirlitsmaðurinn
Þórunn Játvarðardóttir frá Miðjanesi í Reykhólasveit, nú búsett á Reykhólum, er með lágvöxnustu konum. Tóta vann í Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum. Eitt sinn kom maður frá Vinnueftirliti ríkisins í verksmiðjuna til eftirlits. Einn starfsmannanna, Sigurgeir Tómasson frá Reykhólum, kvartaði við eftirlitsmanninn um það hve dráttarvélarnar sem notaðar voru til þess að aka ...Meira
Riðið til kirkju
Eitt sinn var verið að messa í Reykhólakirkju og stóð stór hópur fólks á kirkjuhlaði áður en það gekk í kirkjuna. Þar á meðal var Lilja Þórarinsdóttir á Grund. Lilja er snögg í tilsvörum og á til að vera fljótfær.Meira
Símasambandið
Guðmundur Ólafsson á Grund í Reykhólasveit, hóteleigandi í Bjarkalundi, er mikill símasjúklingur og þarf helst að hafa marga síma í gangi í einu. Vorið 2000 komst Reykhólasveit í GSM-símasamband. Guðmundur var þá að draga sig eftir kennslukonu á Reykhólum, Ástu Sjöfn Kristjánsdóttur að nafni, og er stúlkan úr Reykjavík. Ásta er ...Meira
Á barnum
Skömmu eftir að Guðmundur Ólafsson á Grund í Reykhólasveit keypti hótel Bjarkalund langaði hann til þess að fá sér í glas. Hann fór á barinn til unnustu sinnar, hótelstýrunnar Ástu Sjafnar Kristjánsdóttur og ætlaði að panta romm af tegundinni Captain Morgan. Guðmundur er fremur fljótfær og sagði hátt og skilmerkilega:Meira
Tekist á
Brynjólfur Þór Brynjólfsson, útibússtjóri við Landsbankann á Ísafirði, þykir nokkuð orðhvatur og fljótur til svars. Fyrir mörgum árum var Brynjólfur útibússtjóri Landsbankans á Bíldudal. Þegar hann var nýfluttur á staðinn var hann staddur í Jónsbúð og hitti þar fyrir Björn Ólafsson bónda í Dufansdal í Arnarfirði. Björn, sem var lítið eitt ...Meira
Draumurinn
Eitt sinn þegar Bryjólfur Þór Brynjólfsson, útibússtjóri Landsbankans á Ísafirði, var útibússtjóri á Bíldudal, var hann fara í bankann að morgni til og gekk þá hjá nýbyggingu bankans. Þar voru uppi á þaki nokkrir smiðir, sem sest höfðu flötum beinum til að drekka kaffi.Meira
Hálsrígur
Brynjólfur Þór Brynjólfsson, útibússtjóri Landsbankans á Ísafirði, er nokkuð snöggur upp á lagið og kann vel að svara fyrir sig. Í kaffitíma í Landsbankanum á Ísafirði settist ein starfsstúlkan og neri ákaft hálsinn, kvartaði sáran undan hálsríg og bætti við:Meira
Reiðhjólið
Eitt sinn þegar Brynjólfur Þór Brynjólfsson, útibússtjóri Landsbankans á Ísafirði, var útibússtjóri á Bíldudal, stóð hann á tröppum bankans og gekk þá framhjá ung stúlka og leiddi gamalt reiðhjól sér við hlið. Var þar á ferð Bryndís Björnsdóttir, dóttir Björns í Dufansdal.Meira
Sálmurinn
Björn heitinn Ólafsson, bóndi í Dufansdal í Arnarfirði, kom eitt sinn með stykki úr sláttuvél til viðgerðar á verkstæðið til Arnar Gíslasonar, bifvélavirkja á Bíldudal og núverandi flugvallarstjóra. Björn þurfti að fá gert við stykkið fljótt og vel.Meira
Hálfa flaskan
Eitt sinn fyrir mörgum árum var togari sunnan úr Reykjavík á leið vestur á Halamið. Þegar skipið var komið norður á miðjan Breiðafjörð vantaði varahlut í vélina. Var þá haft samband við Pareksfjörð og beðið um að stykkið yrði flutt þaðan á bát í veg fyrir skipið þegar það kæmi norður ...Meira
Gormæli
Jón Marteinn Guðröðsson frá Kálfavík í Skötufirði í Djúpi var lengi skipstjóri á Steinanesi BA frá Bíldudal. Jón Marteinn er afar kverkmæltur og skrollar errunum með tilþrifum þá er hann opnar munn.Meira
Borgarastéttin
Þekkt var meðal alþingismanna, að tveir þingmenn Vestfjarða, þeir Sighvatur Björgvinsson og Gunnlaugur M. Sigmundsson, voru latir að mæta í veislur á ferðum sendinefnda Alþingis á erlendri grundu. Þeir létu sig gjarnan hverfa saman áður en halda skyldi í slík boð og fóru þess í stað saman út að borða og ...Meira
Rækjutúrinn
Þegar Garðar Ágústsson húsgagnasmiður bjó í Bolungarvík vann hann hjá Jóni Friðgeiri Einarssyni. Stöku sinnum komu dauðir tímar í vinnunni hjá JFE. Jón Guðbrandsson, mágur Garðars, skipstjóri á Sólrúnu ÍS-1 bauð Garðari pláss á skipinu þegar svo stæði á, en skipið stundaði úthafsrækjuveiðar. Garðar sló til þótt honum þættu túrarnir nokkuð ...Meira
Hundsbit
Ari Ívarsson, rithöfundur á Patreksfirði og fyrrum vegaverkstjóri, er bróðir Reynis Ívarssonar, bónda á Móbergi á Rauðasandi, ullar- og gærumatsmanns. Ari kom eitt sinn að Móbergi að heimsækja Reyni bróður sinn og réðst hundurinn á bænum á hann og beit. Þeir bræður mættust svo á bæjarhlaðinu. Ari sagði við Reyni:Meira
Innheimtuaðgerðir
Svavar Jóhannsson var lengi útibússtjóri Samvinnubankans á Patreksfirði. Hann var mikill sómamaður og gætti hagsmuna Patreksfirðinga í hvívetna en þó sérstaklega Samvinnubankans. Sjaldgæft var að greiðsluföll yrðu í bankanum hjá Svavari því hann var afbragðsgóður innheimtumaður, laginn og eftirgangsamur. Á mannamótum og í samkvæmum hnippti hann gjarnan í þá er skulduðu ...Meira
Uppi á annarri
Finnur Magnússon á Ísafirði, golfáhugamaður og leikari, hefur lengi unnið í ritfangadeild Bókhlöðunnar á Ísafirði. Eitt sinn skrapp Finnur yfir í bókadeildina að spjalla við Berglindi Óladóttur afgreiðslustúlku og bar þar að Jónas Gunnlaugsson verslunarstjóra og sá hann þau skötuhjúin standa þarna á spjalli.Meira
Rússlandsferðin
Gísli heitinn Hjaltason í Bolungarvík, fyrrum sjómaður, hafnarvörður og mágur athafnamannsins Einars Guðfinnssonar, var mikill sjálfstæðismaður og trúði á Sjálfstæðisflokkinn ofar sjálfum kristnidómnum. Gísla langaði alla tíð mikið til Rússlands til að sjá af eigin raun hvað þar væri á ferðinni í misheppnaðri stefnu kommúnistanna, sem hann barðist svo hart á ...Meira
Guli bíllinn
Gísli heitinn Hjaltason, sjómaður og hafnarvörður í Bolungarvík, var maður nokkuð víðförull. Eitt sinn eftir að hafa farið til Rússlands fór Gísli til Ameríku með Hofsjökli, einu af skipum Jökla hf., en hann vildi helst alltaf ferðast sjóleiðina ef því varð við komið.Meira
Sökudólgurinn
Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bolungarvík, var einn af umsækjendum um stöðu sýslumannsins á Ísafirði þegar Ólafur Helgi Kjartansson flutti sig um set til Selfoss. Ekki fékk Jónas starfið en eins og kunnugt er veitti dómsmálaráðherra Sigríði Björk Guðjónsdóttur stöðuna. Jónas, sem hefur verið lengi í embætti, sótti það fast að fá ...Meira
Kínverska lyftan
Guðjón A. Kristjánsson (Addi Kitta Gauj), fyrrum togaraskipstjóri og núverandi alþingismaður, er þrekvaxinn mjög og þéttur á velli eins og Vestfirðingar vita manna best. Nýlega var hann á ferðalagi í Kína ásamt eiginkonunni og sex öðrum Íslendingum.Meira
Fæðingarþungi
Þegar bændur úr sveitunum í kringum Hólmavík fóru í einhverjum erindagerðum til Hólmavíkur hittust þeir gjarnan í afgreiðslu Kaupfélagsins og tóku tal saman. Bændur voru þá að kaupa matvöru í búðinni og þurftu einnig að fara í pakkhúsið eftir sekkjavöru, gaddavír og vírneti og slíku.Meira
Íhaldspestin
Þórhallur heitinn Kristinsson, Þóri, fatlaður maður á Hólmavík, var mikill framsóknarmaður og ákaflega orðheppinn, þótt ekki væri hann talinn stíga í vitið. Eitt sinn rétt fyrir kosningar kom Þóri á pósthúsið á Hólmavík að sækja póstinn sinn eftir að rútan var búin að koma. Þóri fékk oft pakka sem innihéldu þá ...Meira
Skreið til Nígeríu
Ragnar Magnússon, fyrrum bóndi á Hamri á Langadalsströnd, síðar á Hólmavík og nú búsettur á Akranesi, var eftirlitsmaður með Blævardalsárvirkjun, fyrst fyrir Rafveitu Snæfjalla- og Nauteyrarhreppa og síðar fyrir Orkubú Vestfjarða. Virkjunin er milli bæjanna Hallsstaða og Hamars og stendur stöðvarhúsið niður við sjó. Aðveitupípan liggur ofan úr fjalli, undir þjóðveginn ...Meira
Orkubúsfundurinn
Þegar Sverrir Hermannsson var iðnaðarráðherra var eitt sinn haldinn aðalfundur Orkubús Vestfjarða í Félagsheimilinu í Hnífsdal. Það var venja, meðan Orkubúið var í eigu sveitarfélaganna á Vestfjörðum, að við stjórnarkjör þurfti að gæta vandlega að því, að jafnvægi væri í stjórninni milli stjórnmálaflokka og sveitarfélaga, en sumir fulltrúar voru svo ráðherraskipaðir. ...Meira
Innvolsa fyrir sunnan
Jón Sigurðsson Hansson, sem lengi var í Djúpi og lengst af vinnumaður hjá Jóni Guðjónssyni og Dórotheu Guðmundsdóttur á Laugabóli, réð sig eitt sinn tímabundið í vinnu hjá þeim hjónum Haraldi heitnum Sæmundssyni og Jóhönnu Jóhannesdóttur á Kletti í Kollafirði. Jón heitinn var orðheppinn og gat verið meinhæðinn, en oft fór ...Meira
Fína trillan
Pétur Jakobsson heitir norskur maður í Bolungarvík og er hann í ætt við fræga norska selveiðimenn. Áður hét Pétur því norska nafni Per Sulebust. Hann er ævinlega nefndur Peri í daglegu tali. Peri kom til Íslands eftir stríð, gifti sig í Bolungarvík og átti börn og buru. Hann var sjómaður alla ...Meira
Að nenna niður á bryggju
Jón Kr. Elíasson (Jónsi Elli), látinn fyrir nokkrum árum, var einn af þeim mönnum sem svip settu á mannlífið í Bolungarvík. Hann var sjómaður allan sinn starfaldur og eftir að hann að hætti sökum aldurs til sjós var höfnin honum hugleikin og átti hann oft leið niður á Brimbrjót að huga ...Meira
Tilhleypingar
Kristján heitinn Sigurðsson (Kitti Sali), sjómaður í Bolungarvík, var sómamaður og hörkukarl. Oft var erfitt hjá honum að sjá fyrir stórum barnahópi. Kitti hélt því til búdrýginda tíu eða fimmtán ær í fjárhúskofa í Víkinni.Meira
Þegar nautið losnaði
Sómakonan Lilja Þórarinsdóttir á Grund í Reykhólasveit er orðhvöt og á til þegar mikið gengur á að vera ákaflega fljótfær. Eitt sinn þegar Lilja var ein úti í fjósi á Grund við mjaltir, varð það að nautið slapp af básnum, braut allt og bramlaði og fór að hamast í kúnum. Lilja ...Meira
Skorið úr þrætum
Jón Sigurðsson á Þingeyri, refaskytta frá Hvammi í Dýrafirði, er sómakarl og fastur á sínu. Hann er ævinlega nefndur Jón rebbi. Stundum er Jón rebbi fljótfær, einkanlega þegar honum er mikið niðri fyrir.Meira
Dömubindin
Á árunum milli 1965 og 1970 var Finnur Magnússon, golfari og leikari á Ísafirði, að vinna í verslun Jóns Ö. Bárðarsonar á Ísafirði. Verslunin var til húsa þar sem nú eru verslanirnar Bimbó og Skóhornið við Aðalstræti. Þegar þetta var voru nýkomin í búðina dömubindi, sem fram að þeim tíma fengust ...Meira
Á uppmælingartaxta
Magnús Þorgilsson á Ísafirði (Maggi kroppur), leysti af á liðnu sumri Ólaf Borgarsson, áhaldavörð í Áhaldahúsi Ísafjarðarbæjar, þegar Ólafur tók sér sumarleyfi. Hlutverk áhaldavarðar er, ásamt mörgu öðru, að svara í síma og taka við ýmsum beiðnum og kvörtunum frá íbúum bæjarins.Meira