Eldra efni

bb.is | 10.05.12 | 13:02 Aftur til Ísafjarðar – nú sem leikarar

Mynd með frétt Í gær fóru fram tökur á nýrri auglýsingu Flugfélags Íslands, en hún var tekin upp á Pollinum á Ísafirði. Söguþráðurinn gengur út á að „stinga af“ til Ísafjarðar, en þar leika þau Guðrún Tómasdóttir og Grétar Snær Hjartarson eldri hjón sem stela trillu og sigla saman út á Djúpið. Guðrún og ...
Meira

bb.is | 10.05.12 | 11:51Hljóðfæranemar hefja vortónleika sína

Mynd með fréttVortónleikaröð Tónlistarskóla Ísafjarðar heldur áfram í kvöld með tónleikum hljóðfæranema á Ísafirði í Hömrum kl. 19.30. Á dagskránni er fjöldi tónistaratriða af fjölbreyttasta tagi. Í kvöld koma fram nemendur á ýmsum stigum hljóðfæranámsins og leika á blokkflautu, píanó, gítara og harmóníku. Næstu vortónleikar hljóðfæranema verða síðan í Hömrum á mánudagskvöld á ...
Meira


bb.is | 10.05.12 | 11:11 Skundi litli mundar myndavélina

Mynd með frétt „Þau viðtöl og viðtalsþættir sem maður sér í sjónvarpi eru alltaf við sama fólkið, sömu elítuna. Þannig kviknaði þessi hugmynd mín,“ segir tónlistarmaðurinn Skundi litli, sem einnig gengur undir nafninu Þorsteinn Haukur Þorsteinsson. Skundi vinnur nú við að taka stutt viðtöl við heimamenn á Vestfjörðum og birtir þau á vefsvæði sínu ...
Meira

bb.is | 10.05.12 | 08:09 Úr flutningabílsakstri yfir í fréttaflutning

Mynd með frétt „Ég ætla auðvitað að vera dugleg að dæla inn fréttum af svæðinu,“ segir Brynja Huld Óskarsdóttir, nýr fréttaritari RÚV á Ísafirði, en hún verður á þeytingi um Vestfirði í sumar. Í viðtali í Bæjarins besta segist Brynja hafa verið öfunduð af því á fréttadeildinni, þegar hún var í þjálfun, að vera ...
Meira


bb.is | 09.05.12 | 14:22 Sneru aftur til Bandalags íslenskra leikfélaga

Mynd með frétt Leikfélag Bolungarvíkur og Leikfélag Flateyrar gengu á ný í Bandalag íslenskra leikfélaga á síðasta leikári. Ekkert félag sagði sig úr bandalaginu á árinu en auk vestfirsku félaganna gekk Leikfélag Austur-Eyfellinga inn í það á ný. Á vef bandalagsins segir að þrátt fyrir erfiða fjárhagsstöðu þess verði ekki betur séð en leiklistin ...
Meira

bb.is | 09.05.12 | 08:10 Eygló með sýningu í Edinborg

Mynd með frétt Eygló Gunnþórsdóttir opnaði fyrstu málverkasýninguna í Edinborg – Bistro, café og bar í síðustu viku. Ætlunin er að ávallt verði myndlistarsýning á staðnum, um fjóra mánuði í senn. Eygló opnaði sína fyrstu málverkasýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur síðasta sumar. Hún eyddi áður mestum hluta tíma síns í að vinna fyrir dóttur sína, ...
Meira


bb.is | 08.05.12 | 09:09 Stjórnvöld standi vörð um áhugaleikhúsið

Mynd með frétt „Starf áhugafólks að listsköpun er mikilvægur þáttur í öllum heilbrigðum samfélögum. Það á ekki síst við um listgreinar þar sem hópar fólks vinna að sameiginlegri rannsókn og tjáningu á mannlífinu, listgreinar á borð við leikhúsið.“ Svo segir í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga, sem haldinn í Edinborgarhúsinu ...
Meira

bb.is | 05.05.12 | 10:57 Strengur og Hringfjórðungur í Múlanum

Mynd með frétt Lagaflokkurinn Strengur eftir Tómas R. Einarsson og mynd/tónverkið Quadrant, eða Hringfjórðungur, eftir Jón Sigurpálsson, verða flutt í djazzklúbbnum Múlanum í Norræna húsinu kl. 16 í dag. Quadrant er mynd- og tónverk samið fyrir slagverksleikara, fimm blindramma og málarabretti. Það var frumflutt í Amsterdam 1983 og síðan flutt í Tókíó nokkrum árum ...
Meira


bb.is | 04.05.12 | 16:57 Hlaupa hálfmaraþon til styrktar krabbameinssjúkri frænku

Mynd með frétt Ísfirðingarnir og feðgarnir Jóhannes Bjarni Jóhannesson og Jóhannes Helgi Jóhannesson ætla að hlaupa hálfmaraþon í Gautaborg í Svíþjóð þann 12. maí. Hlaupið tileinka þeir frænku sinni, Ísfirðingnum Guðlaugu Aðalrós Sverrisdóttur, en hún hefur síðan í nóvember verið í læknismeðferð vegna krabbameins. Í tilkynningu frá feðgunum kemur fram að Guðlaug er fimm ...
Meira

bb.is | 04.05.12 | 13:16 Aðalfundur BÍL haldinn á Ísafirði

Mynd með frétt Fulltrúar frá áhugaleikfélögum víða á landinu koma til Ísafjarðar í dag til að halda árlegan aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga (BÍL), en Litli leikklúbburinn er gestgjafi að þessu sinni. Dagskráin hefst í fyrramálið og fundarhöldum lýkur um hádegi á sunnudag. Bandalag íslenskra leikfélaga eru samtök áhugaleikfélaga á Íslandi, stofnuð árið 1950. Í ...
Meira


bb.is | 04.05.12 | 09:34 Við Djúpið: KK og brasilískur jazz

Mynd með frétt „Við leituðumst við að hafa breidd í prógramminu en um leið að halda okkur innan rammans,“ segir Skúli „mennski“ Þórðarson, sem sér um að setja saman röð kvöldtónleika á tónlistarhátíðinni Við Djúpið á Ísafirði. Hátíðin verður haldin í tíunda skipti í sumar dagana 19.-24. júní og fyrstur stígur á svið í ...
Meira

bb.is | 03.05.12 | 15:45 Megakukl leggur land undir fót

Mynd með frétt Vestfirska hljómsveitin Megakukl leggur land undir fót og treður upp í Landnámssetrinu í Borgarnesi annað kvöld og á Café Rósenberg í Reykjavík á laugardagskvöld. Er þetta fyrsta tónleikaferð sveitarinnar út fyrir Vestfirði, en að sögn Guðmundar Hjaltasonar gítarleikara Megakukls, hefur hún lengi verið í bígerð. „Við ákváðum í fyrra að fara ...
Meira


bb.is | 03.05.12 | 15:10 Safarí og hvalaskoðun í Djúpinu

Mynd með frétt Sigurður Aðalsteinsson ætlar í sumar að bjóða hvalaskoðunarferðir um Djúpið á svokölluðum RIB-bát. „Mig langaði að bjóða upp á nýjung í ferðaþjónustu hérna, eitthvað nýtt. Ég hef verið að fylgjast með RIBSafari í Vestmannaeyjum og þeim sem reka hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle Giants á Húsavík, en bæði fyrirtækin notast við sams konar bát ...
Meira

bb.is | 03.05.12 | 13:51 „Noregur er okkur vannýtt auðlind“

Mynd með frétt „Við yfirgáfum þetta svæði fyrir þúsund árum en maður finnur enn fyrir greinilegum tengslum þegar maður dvelur þarna,“ segir Ísfirðingurinn Elísabet Gunnarsdóttir um Noreg. Hún sneri nýlega heim eftir átta ára dvöl í Noregi og Kanada og þessa dagana hefur hún umsjón með norskunámskeiðum hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Hún segir Íslendinga aldrei ...
Meira


bb.is | 03.05.12 | 13:01 „Lífið er mikið ævintýri“

Mynd með frétt „Ég hef alltaf verið opinn með það að ég sé HIV-jákvæður,“ segir Bolvíkingurinn Einar Þór Jónsson. „Það gera fæstir sem eru HIV-jákvæðir. Fólk hefur óttast höfnunina og stimplunina sem því fylgir mikið og það skammast sín og dæmir sjálft sig gjarnan hart fyrir að hafa lent í þessum aðstæðum. Enn ríkja ...
Meira

bb.is | 03.05.12 | 10:14 Bókabeitan: Góð viðbrögð lesenda

Mynd með frétt Útgáfa bókaforlagsins Bókabeitunnar gekk vel á síðasta ári og voru viðbrögð lesenda góð, bæði fullorðinna og unglinga. „Við höfum heyrt margar sögur af krökkum sem hafa ekki fengist til að lesa áður, en þetta hafi verið bækur sem hafi kveikt áhugann. Þetta virðist því vera að heppnast hjá okkur og við ...
Meira


bb.is | 02.05.12 | 15:45 Ísfirskir söngfuglar heiðraðir

Mynd með frétt Karlakórinn Ernir hélt þrenna vortónleika á norðanverðum Vestfjörðum á dögunum. Að sögn formanns kórsins, Þorsteins Jóhannessonar, heppnuðust þeir vel. „Annars væri nú betra að spyrja þá sem komu og hlýddu á okkur hvernig tókst til, en við erum að minnsta kosti í skýjunum með móttökurnar.“ Á síðustu tónleikunum sem fóru fram ...
Meira

bb.is | 02.05.12 | 13:15 Sá Bolungarvík í sínu flottasta skarti

Mynd með frétt „Einhvern veginn fóstraði þorpið mig,“ segir tónlistargoðsögnin Bubbi Morthens í viðtali við Morgunblaðið. „Ég fór svo ungur út á land, þá þótti ekkert merkilegt að fimmtán ára strákar kæmu í þorp að vinna og þá þóttu menn á höfuðborgarsvæðinu ekki heldur vera að taka niður fyrir sig að fara út á ...
Meira


bb.is | 02.05.12 | 07:51 Ljósmyndaferill sem spannaði 80 ár

Mynd með frétt Ljósmyndasýning er opnuð í dag á Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði en þar eru sýnd verk Hjálmars R. Bárðarsonar. Hjálmar fæddist að Tangagötu 4 á Ísafirði árið 1918, sonur hjónanna Bárðar G. Tómassonar skipaverkfræðings og Filippíu Hjálmarsdóttur. Hann var afkastamikill áhugaljósmyndari og gaf út fjölda bóka með myndum af landi og þjóð. ...
Meira

bb.is | 27.04.12 | 16:57 Hrefnu landað á Ísafirði

Mynd með frétt Hrefnuveiðimaðurinn Konráð Eggertsson kom í land á Ísafirði í dag á Halldóri Sigurðsson ÍS með myndarlega hrefnu. Bráðin er ætluð til gerðar svokallaðra Bæjarstjórabita. Þeir eru ísfirskt djörkí sem nýtur sívaxandi vinsælda. Konráð ætlaði að ná í meiri ís og halda síðan strax út á miðin á ný, en það vakti ...
Meira


bb.is | 27.04.12 | 13:15 Mannlíf í vorblíðunni

Mynd með frétt Morgunsólin virtist glæða Ísafjörð auknu lífi. Ljósmyndari blaðsins brá undir sig fætinum og tók nokkrar svipmyndir af mannlífinu á þessum fagra föstudagsmorgni. Margir voru á ferli, ýmist að sinna störfum sínum eða vinna tækisfæriverk eins og að tjöruhreinsa bílinn. Þá rakst hann á nokkra erlenda keppendur á vegum Fossavatnsgöngunnar sem voru ...
Meira

bb.is | 27.04.12 | 09:32 Bleikir pardusar ærslast um bæinn

Mynd með frétt Bleikir pardusar örkuðu um Ísafjörð eldsnemma í morgun með trumbuslætti og lúðraþyt, en þar var á ferðinni hin árvissa brottsending útskriftarnema Menntaskólans á Ísafirði. Jóhanna Stefánsdóttir menningarviti Nemendafélags MÍ og eitt af stúdentsefnunum segir mikið fjör meðal nemendanna. „Það er mjög gaman hjá okkur. Í morgun milli kl. 5 og 6 ...
Meira



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli