Ferðahornið

bb.is | 03.02.12 | 13:01 Gistinóttum fjölgaði um 3%

Mynd með frétt Gistinóttum á hótelum á samanlögðu svæði Vestfjarða og Vesturlands fjölgaði um 3% á síðasta ári samanborið við árið á undan. Alls voru gistinæturnar á síðasta ári 47.968 samanborið við 46.374 árið á undan. Gistinætur erlendra gesta voru mun fleiri en gistinætur Íslendinga á síðasta ári eða 30.558 samanborið við 17.410 gistinætur ...
Meira

bb.is | 24.01.12 | 16:49Býður upp á hvalaskoðunarferðir

Mynd með fréttKaldasker ehf., á Ísafirði ráðgerir að bjóða upp á hvalaskoðunarferðir í Ísafjarðardjúpi í sumar. Sigurður Gunnar Aðalsteinsson fer fyrir félaginu sem hefur fest kaup á harðbotna slöngubátnum Ísold. Að sögn Sigurðar hafa slíkir bátar reynst vel í hvalaskoðun, bæði á Húsavík og í Vestmannaeyjum. Auk hvalaskoðunarferða hyggst félagið bjóða upp á ...
Meira

bb.is | 24.01.12 | 09:15Opna kaffihús í bland við ferðaþjónustu

Mynd með fréttFerðaþjónustufyrirtækið Borea Adventures á Ísafirði ætlar að flytja sig um set og opna ferðaskrifstofu í húsnæði Langa Manga á Ísafirði en þar verður einnig opnað kaffihús í samstarfi við fyrirtækið. Ferðaskrifstofan hefur um nokkurt skeið verið til húsa í Hæstakaupstaðarhúsinu svokallaða á Ísafirði. „Við erum byrjaðir að undirbúa flutninginn og ætlum ...
Meira

bb.is | 20.01.12 | 13:01Aflýsa Jan Mayen ferðum

Mynd með fréttFerðaþjónustufyrirtækið Borea Adventures á Ísafirði hefur aflýst ferðum til Jan Mayen sem skipulagðar höfðu verið í sumar. Eyjan var gerð að friðlandi fyrir um einu og hálfu ár og þar með var umferð um eyjuna takmörkuð. Ekki fæst lendingarleyfi á tveimur afmörkuðu svæðum og þá eru allar tjaldbúðir á stærstum hluta ...
Meira

bb.is | 18.01.12 | 09:11 Vestfirsk ferðaþjónusta í sókn

Mynd með frétt Nær 13,9% erlendra ferðamanna komu til Vestfjarða síðastliðið sumar samkvæmt könnun Ferðamálastofu sem bendir til að vestfirsk ferðaþjónusta sé að sækja í sig veðrið því samkvæmt samskonar könnun komu 13,2% erlendra ferðamanna til Vestfjarða sumarið 2010. Flestir erlendu gestanna stoppuðu stutt við en 52,4% þeirra gistu í 1-2 nætur á svæðinu, ...
Meira

bb.is | 17.01.12 | 10:59Nær 13,2% erlendra ferðamanna heimsóttu Vestfirði

Mynd með fréttNær 13,2% erlendra ferðamanna á Íslandi sumarið 2010 komu til Vestfjarða samkvæmt könnun Rannsókna og ráðgjafar ferðaþjónustunnar (RRF) fyrir Markaðsstofu Vestfjarða. Af þeim gistu 11,2% að jafnaði í 3,6 nætur. Miðað við 240 þúsund ferðamenn til landsins sumarið 2010 má áætla að 32 þúsund þeirra hafi komið á Vestfirði og 26 ...
Meira

bb.is | 16.01.12 | 14:526,5% erlendra ferðamanna heimsóttu Ísafjörð árið 2010

Mynd með fréttÁætlað er að um 16 þúsund erlendir ferðamenn hafi komið á Ísafjörð sumarið 2010 eða 6,5% þeirra erlendu gesta sem komu til landsins það árið. Þetta kemur fram í könnun á vegum Rannsókna og ráðgjafar ferðaþjónustunnar (RRF) sem unnin var fyrir Markaðsstofu Vestfjarða. Þar segir jafnframt að um 15 þúsund erlendir ...
Meira

bb.is | 12.01.12 | 16:57Frommer‘s mælir með Tjöruhúsinu

Mynd með fréttTjöruhúsið á Ísafirði er einn af átta veitingastöðum hérlendis sem ferðahandbókin Frommer´s mælir sérstaklega með að ferðamenn prófi. Meðal annarra staða má nefna Sjávarkjallarann í Reykjavík og Fjöruborðið á Stokkseyri. Í umsöng Frommer‘s um Tjöruhúsið segir meðal annars að þar sé hægt að fá einstaklega ferskan og góðan pönnusteiktan fisk. Ekki ...
Meira


Vestfirðir 2010

Vestfirðir 2009

Vestfirðir 2008

Vestfirðir 2007

Vestfirðir 2006

Vestfirðir 2005

Vestfirðir 2004

bb.is | 11.01.12 | 10:55 Þjóðverjar og Englendingar fara í norðurljósaferðir í Heydal

Mynd með frétt Vel hefur gengið hjá ferðaþjónustunni í Heydal í Mjófirði að markaðsetja norðurljósin til erlendra ferðamanna yfir vetrartímann. Um er að ræða fjögurra daga ferðir sem hefjast í október en þetta þriðja árið í röð sem Heydalur stendur fyrir slíkum norðurljósaferðum. „Þetta vekur lukku. Jafnvel þó að ferðalangarnir sjái ekki norðurljós, því ...
Meira

bb.is | 06.01.12 | 13:01Gistinóttum fjölgaði um 4%

Mynd með fréttGistinóttum á hótelum fjölgaði um 4% á samanlögðu svæði Vestfjarða og Vesturlands á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs, að því er fram kemur í nýjum tölum Hagstofunnar. Alls voru gistinætur á tímabilinu 47.260 saman borið við 45.593 á sama tímabili árið 2010. Þar af voru erlendir gestir í meirihluta eða 30.292 ...
Meira

bb.is | 30.12.11 | 13:16Skútusiglingar kaupa Sjótaxann

Mynd með fréttSigurður Bjarni Hjartarson, eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Bjarnarnes ehf., í Bolungarvík er hættur farþegaflutningum á Hornstrandir og hefur farþegabátur fyrirtækisins Sjótaxinn (Bjarnarnes ÍS 75) verið seldur til Skútusiglinga ehf., á Ísafirði. Sigurður Bjarni hefur siglt með farþega á Hornstrandir um fimm ára skeið. „Það er með söknuði sem ég kveð þennan vettvang, þetta ...
Meira

bb.is | 30.12.11 | 09:10 Tilefni til bjartsýni fyrir árið 2012

Mynd með frétt „Yfir þessa dimmustu daga ársins held ég að sé töluvert tilefni til bjartsýni fyrir árið 2012,“ segir Gústaf Gústafsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Vestfjarða, aðspurður um væntingar til komandi árs í ferðaþjónustunni. „Þróunin hér vestra hefur verið mjög jákvæð undanfarin ár að mörgu leyti. Sem dæmi má taka að fjöldi ferðamanna sem lagði ...
Meira

bb.is | 29.12.11 | 16:57Rekstur tjaldsvæðisins boðinn út

Mynd með fréttBæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að heimila sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs að óska eftir tilboðum í rekstur tjaldsvæðisins í Tungudal í Skutulsfirði. Tjaldsvæðið var rekið af starfsfólki íþróttahússins á Ísafirði í sumar en ljóst er að ekki verður lengur hægt að samnýta starfsfólk á milli staða. Heppilegast er því talið að bjóða ...
Meira

bb.is | 22.12.11 | 14:52Fleiri sækja söfnin

Mynd með fréttÁætluð aðsókn að söfnum og tengdri starfsemi á Vestfjörðum á síðasta ári var ríflega 46.600 gestir. Er það töluverð aukning frá fyrra ári þegar þeir voru tæplega 44.300 talsins. Einnig fjölgaði sýningarstöðum milli ára eða úr fjórtán árið 2009 í sextán í fyrra. Þetta kemur fram tölum Hagstofunnar. 10.600 gestir heimsóttu ...
Meira


bb.is | 19.12.11 | 13:48 Gistirýmum fjölgar um 40-50%

Mynd með frétt Bygging yfir sextíu nýrra gistirýma er í undirbúningi á Ísafirði, sem þýðir að rýmum fjölgar þar um 40-50%. Um hundrað og tuttugu gistirými eru nú á Ísafirði en fyrir nokkrum árum var kvartað yfir slæmri nýtingu á þessum rýmum, ekki síst yfir vetrartímann. Nú er öldin önnur. Þrjú hús í bænum ...
Meira

bb.is | 19.12.11 | 10:56Metfjöldi farþega næsta sumar

Mynd með fréttFjöldi farþega skemmtiferðaskipa sem heimsækir Vestfirði fer næsta sumar í fyrsta sinn yfir 30.000 farþega. Bókaðar skipakomur til Ísafjarðar á komandi ári eru 33 talsins og samanlögð stærð skipanna er yfir eina milljón brúttótonn, en á árinu 2011 var heildarstærð skipana 800.000 brúttótonn og farþegafjöldi rúmlega 21.000. Rétt er að geta ...
Meira

bb.is | 14.12.11 | 08:42Fengu hvatningaverðlaun Ferðaþjónustu bænda

Mynd með fréttFerðaþjónustubændurnir í Heydal í Mjóafirði fengu hvatningaverðlaun Ferðaþjónustu bænda í ár. Verðlaunin eru veitt félagsmönnum fyrir einstaka og vel útfærða hugmynd og frumkvæði að uppbyggingu í ferðaþjónustu sem miðar að skemmtilegri og innihaldsríkri upplifun fyrir gestina. Handhafar verðlaunanna að þessu sinni voru þrír en auk þeirra í Heydals fengu ferðaþjónustubændur í ...
Meira

Eldra efni

bb.is | 13.12.11 | 16:50 Nancy Bechtloff ráðin framkvæmdastjóri Vesturferða

Mynd með frétt Nancy Bechtloff hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Vesturferða á Ísafirði. Ráðgert er að hún hefji störf í lok janúar eða byrjun febrúar en hún starfar eins og er sem markaðs- og sölufulltrúi meginlands Evrópu hjá Iceland Express. „Ég er mjög spennt að takast á við þetta verkefni og þar sem ég hef ...
Meira

bb.is | 05.12.11 | 10:52Þjóðverjar í miklum meirihluta

Mynd með fréttFyrstu tíu mánuði ársins fjölgaði gistinóttum á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða um 5%. Voru þær 45.886 talsins en þar af voru 15.947 Íslendingar og 29.939 útlendingar. Þjóðverjar voru í miklum meirihluta erlendu gestanna eða 6.974 talsins. Því næst komu Bretar sem voru 3.701 og Bandaríkjamenn sem voru 3.324. Þar á ...
Meira

bb.is | 02.12.11 | 16:49Stefnir í algjört metsumar 2013

Mynd með fréttCarnival, stærsta skemmtiferðaskipafélag í heiminum hefur ákveðið að bæta Ísafirði inn sem viðkomustað sumarið 2013. Hefur félagið lagt inn pöntum fyrir sex skip, Aurora, Arcadia, Oriana, Queen Victoria og Queen Elizabeth. Allt eru þetta stór skip og tvö síðastnefndu eru meðal mestu lúxusskipa í heimi. Aida Cruises skipafélagið mun einnig hefja ...
Meira


Leitarvélin

Útgefandi

Gúttó ehf.
Sólgötu 9, 400 Ísafjörður
Sími 456 4560 - Fax 456 4564
Kt. 680501-2620
netfang: bb@bb.is
Veffang: www.bb.is

Ritstjóri vikublaðsins
Bæjarins besta

Sigurjón J. Sigurðsson

Ábyrgðarmenn vikublaðsins
Bæjarins besta

Sigurjón J. Sigurðsson
Halldór Sveinbjörnsson


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli