Frétt

Fylkir Ágústsson og Ágúst Atlason margmiðlunarhönnuður Snerpu setja hér síðuna formlega í loftið.
Fylkir Ágústsson og Ágúst Atlason margmiðlunarhönnuður Snerpu setja hér síðuna formlega í loftið.

bb.is | 26.02.2007 | 07:20Ferðaskrifstofan Fylkir.is opnar nýjan og endurbættan vef

Ferðaskrifstofan Fylkir.is setti formlega nýja vefsíðu í loftið á föstudag. Um er að ræða nýrri hönnun á gamalli og góðri síðu sem Fylkir Ágústsson hefur haldið úti síðan 1997. Er þetta þriðja kynslóð vefsvæðis hans og hefur síðan virkilega vaxið og dafnað síðan 1997. Er vefsíðan sett upp í Snerpill vefumsjón, vefumsjónarkerfi tölvuþjónustunnar Snerpu ehf. Á vefsíðunni má finna og panta hinar ýmsu upplýsingar um Danmörku, og ferðalög þangað, hvort sem það er í formi texta, tengla, skráa eða mynda. Fylkir Ágústsson er eini eigandi ferðaskrifstofunnar og er sérstaða hennar sú að hún er nánast eingöngu rekin á netinu og í gegnum síma. Viðskiptavinir geta valið sumarhús eða aðra þjónustu beint af heimasíðu ferðaskrifstofunnar. Fylkir hefur verið ræðismaður Danmerkur á Ísafirði frá 30. apríl 2001 og var sæmdur Dannebrog orðu árið 2000.

thelma@bb.is



Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli