Frétt

22.05.13 Vortónleikar Sunnukórsins

Error while loading control : Object reference not set to an instance of an object.
Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari BÍ/Bolungarvíkur.
Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari BÍ/Bolungarvíkur.

bb.is | 14.01.2013 | 14:02„Íslenskir karlmenn þora ekki vestur“

„Þetta hefur gengið frekar brösuglega. Við höfum verið fáliðaðir í vetur og það er að há okkur,“ segir Jörundur Áki Sveinsson þjálfari knattspyrnuliðs BÍ/Bolungarvíkur, en liðið leikur í 1. deild karla í knattspyrnu. Þrátt fyrir að hafa lítinn hóp er Jörundur Áki ánægður með þá leikmenn sem hann hefur að spila úr, en hann býst við að styrkja liðið með leikmönnum erlendis frá. Erfitt er að fá íslenska leikmenn til að spila á Ísafirði að sögn Jörundar.„Íslenskir karlmenn þora ekki vestur. Þeim finnst þetta vera of langt í burtu frá Reykjavík.“

Tveir erlendir leikmenn eru á reynslu hjá BÍ/Bolungarvík og fleiri leikmenn koma til liðsins á næstu viku. Að sögn Jörundar er liðið því miður í þeirri stöðu að geta nær einungis fengið til sín útlendinga. „Íslenskir leikmenn setja fjarlægðina frá Reykjavík fyrir sig. Svo vilja þessir strákar, a.m.k. sumir hverjir, fá stjarnfræðilega háar upphæðir yfir að spila fótbolta.“

Lið BÍ/Bolungarvíkur hélt sæti sínu í 1. deild síðasta sumar eftir að hafa verið í fallbaráttu framan af. Jörundur segir of snemmt fyrir liðið að setja sér markmið fyrir sumarið. „Við verðum að bíða og sjá hvernig hópurinn okkar verður. Við erum svolítið á eftir öðrum liðum í deildinni vegna þess að hópurinn okkar er tvískiptur og við náum ekki að æfa mikið saman,“ segir Jörundur, en hluti liðsins býr á Ísafirði og í Bolungarvík og hluti í Reykjavík.

gudmundur@bb.is

Error while loading control : Object reference not set to an instance of an object.

Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi