Frétt

Páll Gunnar Loftsson sleit barnsskónum í Reykjavík, en er ekki mikið borgarbarn.
Páll Gunnar Loftsson sleit barnsskónum í Reykjavík, en er ekki mikið borgarbarn.

bb.is | 06.09.2012 | 09:09Hættur að vera nýbúi

„Það segja það margir sem flytja á minni staði úti á landi að það geti verið erfitt að vera tekinn alveg inn í samfélagið. Ég upplifði það aldrei,“ segir Páll Gunnar Loftsson, sem fluttist til Ísafjarðar fyrir hátt í þrjátíu árum og er hvergi á förum. Páll Gunnar er í opnuviðtali Bæjarins besta í dag, en þar segir hann frá félagslegri ofvirkni, leiklistareitrinu og styrknum sem hann hefur fundið í Ísfirðingum á erfiðum tímum. Páll Gunnar fluttist til Ísafjarðar fyrir hátt í þrjátíu árum síðan, og getur hvergi annarsstaðar hugsað sér að vera. Hann er „síbúí“ á Ísafirði, að eigin sögn. Frá fyrstu tíð hefur Páll verið ofvirkur í félagsstarfi og til dæmis tekið þátt í öllum uppsetningum Litla leikklúbbsins frá því að hann var fyrst dreginn í félagið, nauðugur viljugur.

Í viðtalinu segir Páll m.a. frá tilviljununum sem hafa stýrt honum hingað og þangað í lífinu, uppáhalds hlutverkunum og þeim ómetanlega stuðningi sem Ísfirðingar sýndu honum og fjölskyldunni eftir fráfall sambýliskonu hans eftir erfið veikindi.

„Við ætluðum að prófa þetta í svona þrjú, fjögur ár – en ég er hérna ennþá, tæpum þrjátíu árum seinna. Og vil nú bara helst ekkert hugsa um það að fara neitt! Ég hættur að vera nýbúi, ég er orðinn síbúi,“ segir hann.

gudmundur@bb.is

bb.is | 17.06.13 | 10:19 Gleðilega hátíð!

Mynd með frétt Bæjarins besta og bb.is óska lesendum sínum gleðilegrar hátíðar, en í dag fagna Íslendingar stofnun lýðveldisins árið 1944. Í dag eru einnig 202 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar, helsta leiðtoga Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni, en hann fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. ...
Meira

bb.is | 17.06.13 | 09:19Hátíðarhöld á Hrafnseyri

Mynd með fréttHátíðardagskráin í dag, 17. júní, að Hrafnseyri við Arnarfjörð hefst kl. 12.30 með hátíðarguðsþjónustu í Hrafnseyrarkapellu þar sem Arnaldur Finnsson guðfræðingur predikar en séra Hildur Inga Rúnarsdóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari. Kirkjukór Þingeyrarkirkju syngur. Að guðsþjónustu lokinni verður boðið upp á ...
Meira

bb.is | 16.06.13 | 11:27Ég er frjáls - Melódíur minninganna

Mynd með fréttJón Kr. Ólafsson á Bíldudal söng inn á sína fyrstu plötu árið 1969. Á sínum tíma söng hann mikið með Ingibjörgu Guðmundsdóttur, en hún er einna þekktust í samhenginu BG og Ingibjörg. Hún gaf út sína fyrstu plötu árið 1970 og ...
Meira

bb.is | 16.06.13 | 09:20Heimilisofbeldi: Hópmeðferð fyrir börn hætt

Mynd með frétt„Þetta úrræði hefur ekki verið notað af okkur þar sem það hefur bara verið til boða fyrir sunnan. Ástæða þess að það er lagt niður er minnkandi þörf. Ég vil taka fram að börn sem búa við slíkar aðstæður hér munu ...
Meira

bb.is | 15.06.13 | 11:30Villt blanda af hundi og ketti

Mynd með fréttEster Rut Unnsteinsdóttir er fædd og uppalin í Garðahreppi, sem kallast í dag Garðabær. Hún er sjöunda í röð 10 systkina og ætlaði að verða rosalega margt þegar hún yrði stór. Í dag er hún framkvæmdastjóri Melrakkasetursins í Súðavík þar sem ...
Meira

bb.is | 15.06.13 | 09:17Hvimleitt að stjórnvöld hafi svona mikið vægi

Mynd með frétt„Þessi niðurstaða um umsóknina um fiskeldi í Djúpinu er mjög mikil vonbrigði fyrir okkur. Í fyrsta lagi vegna þess að nefndin hafði þrjá mánuði til að úrskurða um málið en er að gefa úrskurðinn núna, einu og hálfu ári síðar. Þetta ...
Meira

bb.is | 14.06.13 | 16:43Það geta allir eldað mat!

Mynd með frétt„Ég hafði safnað uppskriftabókum í mörg ár en notaði þær samt aldrei, sem mér fannst svolítið sorglegt og ákvað því að taka mig á og nota bækurnar. Þetta átti að vera svona einu sinni í mánuði en svo þróaðist þetta út ...
Meira

bb.is | 14.06.13 | 14:55Bolvíkingar borga betur

Mynd með fréttÍ kjölfar fréttar í morgun um laun unglinga í vinnuskólanum á Ísafirði barst BB ábending um að laun bolvískra unglinga séu jafnvel hærri en hjá kollegum þeirra á Ísafirði. Þar eru unglingar sem fæddir eru á árinu 1999 með 717 krónur ...
Meira

bb.is | 14.06.13 | 13:05Sólstafir Vestfjarða fengu styrk frá ráðuneyti

Mynd með fréttSólstafir Vestfjarða, sjálfshjálparsamtök þolenda kynferðisbrota, hafa fengið styrk frá velferðarráðuneytinu að upphæð tæplega 1,7 milljóna króna. Styrkurinn mun vera hluti af aðgerðaáætlun fyrrverandi ríkisstjórnar vegna kynferðisofbeldis gegn börnum, sem samþykkt var í byrjun apríl. Með innspýtingu um 190 milljóna króna inn ...
Meira

bb.is | 14.06.13 | 10:54Engar viðgerðir á Þingeyrarflugvelli

Mynd með frétt„Ekki verður farið í neinar viðgerðir á Þingeyrarflugvelli þar sem ekki eru fjárveitingar til þess. Flugbrautin verður völtuð og völlurinn verður notaður það sem eftir er af sumrinu,“ segir Friðþór Eydal, talsmaður Isavia. Flugbrautin skemmdist vegna frostlyftingar í byrjun mars og ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi