 Einn af grjóthnullungunum sem lentu í garðinum. Mynd: Facebook. |
bb.is | 20.08.2012 | 15:40Garðurinn fylltist af smágrjóti
Íbúum að Stórholti 7 á Ísafirði brá heldur betur í brún á föstudag þegar steinum tók að rigna yfir garð íbúðarhússins. Byggingafyrirtækið Geirnaglinn vinnur að gerð snjóflóðavarnagarðs við fjallið Kubba í Skutulsfirði, en mistök við borun ollu því að grjóthnullungar fóru á flug. „Það sprakk úr hæðinni og borinn sveigðist frá einum stað til annars. Borinn fór út í hliðina á berginu og það sprakk úr því,“ segir Sævar Óli Hjörvarsson, verkstjóri hjá Geirnaglanum.
„Mestallt grjótið fór inn í snjóflóðagarðinn sjálfan en eitthvað fór inn í garðinn hjá fólkinu,“ segir Sævar, sem segir að óhöpp sem þessi geti alltaf átt sér stað og mestu máli skipti að enginn hafi slasast. „Við flautum alltaf fyrir sprengingar og eftir þannig að fólk á að passa sig. Það veit hvenær við erum að bora og sprengja. Svona lagað getur alltaf gerst því miður.“
Fyrirtækið Háfell sér um sprengingar fyrir Geirnaglann.
gudmundur@bb.is
„Það kemur Vestfirðingum vissulega ekkert á óvart þó ég tilkynni það hér með að straumleysi er mest á Vestfjörðum, á öllu starfssvæði Landsnets,“ sagði Þórður Guðmundsson forstjóri Landsnets, raforkudreifingar ríkisins, á opnum ársfundi Orkubús Vestfjarða á dögunum. Í erindi sínu fjallaði ...
Meira
„Einhvern veginn þarf þessi regnhlíf sem Menningarmiðstöðin er, innan starfsemi Edinborgarhússins sem heildar, að tryggja rekstur sinn og blómlegt menningarlíf allan ársins hring,“ segir Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir rekstrarstýra Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar á Ísafirði. „Þeir hagsmunir sem á hverjum tíma eru uppi, verða ...
Meira
„Ég veit ekki hvaða lýsingarorð á að nota, þetta er gjörsamlega út úr korti hvernig Vegagerðin bregst við þessari vá á þessum vegi. Eins og að loka klukkan 16 á föstudegi yfir hvítasunnuhelgina um óákveðinn tíma með þeirri skýringu að ekki ...
Meira
Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps lítur þá stöðu sem komin er upp á þjóðvegi 60 í Kjálkafirði alvarlegum augum. Mesti annatími ársins sé að ganga í garð og fyrirtæki eigi mikið undir því komið að samgöngur séu eins og best verður á kosið. Núverandi ...
Meira
„Það er greinilegt að Ísfirðingar er mjög ánægðir með að bíó sé partur af menningarlífinu sem bærinn bíður uppá,“ segir Gróa Böðvarsdóttir hjá Ísafjarðarbíó en nú um helgina hefst sumarvertíðin af fullum krafti. „Þetta eru auðvitað þessar klassísku sumarmyndir sem við ...
Meira
Misræmi er á milli stofnvísitölu rækju og ráðlagðra veiða Hafrannsóknastofnunar undanfarinna ára. Afli á sóknareiningu CPUE, sem er afli í kílóum á hverja klukkustund togtímans, hefur haldist á svipuðu róli á árunum 1974-2011. Á fyrri árum var lagt til að veitt ...
Meira
Úthafsrækjuveiðar verða stöðvaðar 1. júlí en til stendur að endurskoða skipulag rækjuveiða við landið sem hafa verið frjálsar undanfarin ár. Líklegt þykir að gefnar verði út aflaheimildir á skip en ekki eru allir sammála um útfærsluna. Fyrirkomulag undanfarinna ár hefur haft ...
Meira
Óvenju mikið er um stórar og umfangsmiklar framkvæmdir og fjárfestingar í Ísafjarðarbæ á næstu misserum. Um er að ræða verkefni sem sum hver hlaupa á hundruðum milljóna króna. Landsnet og Orkubú Vestfjarða hyggjast reisa 320m² hús að Skeiði 7 sem á ...
Meira
Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttalögmaður kannar þessa dagana möguleika á kæru vegna útboðs á almenningssamgöngum í Ísafjarðarbæ. Eigandi fjögurra fyrirtækja, Friðfinnur Sigurðsson á Þingeyri, sem lagði inn fjögur tilboð í verkið, hefur leitað til Sigurðar vegna þessa. Öll tilboð fyrirtækja Friðfinns voru ...
Meira
„Katrínu Júlíusdóttir þótti ekki við hæfi að skipa nýja stjórn Orkubúsins á síðustu starfsdögum sínum og því var ákveðið að fresta aðalfundinum,“ segir Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sem á sæti í stjórn fyrirtækisins, en aðalfundinn átti að halda í gær. Opinn ársfundur ...
Meira