bb.is | 29.07.2012 | 09:16Arnarvarpið með slakasta móti
Arnarvarpið í vor afar illa við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Enginn ungi komst upp við norðanverðan fjörðinn og aðeins einn ungi er að verða fleygur um þessar mundir á Vestfjörðum. Þetta er annað árið í röð sem arnarvarp gengur illa. „Til lengri tíma litið eru þó góðar horfur með arnarstofninn eftir tiltölulega góða viðkomu undanfarin tíu ár. Stofninn er í vexti og nokkur pör hafa helgað sér óðul á nýjum stöðum eða tekið sér bólfestu á fornum setrum, segir í frétt á vef Náttúrustofnunar.Þar segir að þrátt fyrir að varp hafi gengið ágætlega við Faxaflóa var arnarvarpið þetta sumarið með slakasta móti. Vitað er um 21 par með 28 unga sem verða fleygir um miðjan ágúst. Varp misfórst hins vegar hjá meirihluta þeirra 45 arnarpara sem urpu í vor.
Náttúrufræðistofnun kennir kuldakasti, truflun af mannavöldum og óprúttnum aðilum sem spillt hafa hreiðrum um. Væntanlega hefur kuldakastið í fyrrihluta maí átt mestan þátt í því. Ernir verpa snemma eða um miðjan apríl og eru því viðkvæmir fyrir vorhretum og eins truflunum af mannavöldum sem því miður þekkjast enn á vissum svæðum. „Sæferðir, eitt helsta ferðaþjónustufyrirtækið við Breiðafjörð, gengur þar á undan með slæmu fordæmi og hefur siglt ólöglega að arnarhreiðrum og truflað fuglana á viðkvæmum tíma snemma vors. Þá hafa óprúttnir aðilar skemmt arnarhreiður og komið upp hræðum og öðrum búnaði til að hindra arnarvarp,“ segir í frétt á vef Náttúrufræðistofnunar.
Þess má geta að arnarstofninn hefur vaxið eftir stöðnun frá 2005 og telur nú um 69 pör.
thelma@bb.is
bb.is | 24.05.13 | 16:50 Ferðamenn afbóka vegna ástand vegarins um Kjálkafjörð
Meira
bb.is | 24.05.13 | 14:48Ástandið ógn við atvinnuöryggi
Meira
bb.is | 24.05.13 | 13:02Mikið bíósumar á Ísafirði
Meira
bb.is | 24.05.13 | 10:53Stofnvísitalan segir ekki allt
Meira
bb.is | 24.05.13 | 09:12Algjörlega galið að stöðva rækjuveiðar
Meira
bb.is | 24.05.13 | 07:40Samstarfssamningur undirritaður um sjávartengda nýsköpun
Meira
bb.is | 23.05.13 | 16:49Milljarða framkvæmdir í Ísafjarðarbæ
Meira
bb.is | 23.05.13 | 14:47Kæruferli vegna útboðs?
Meira
bb.is | 23.05.13 | 13:01Aðalfundi Orkubús Vestfjarða frestað vegna nýrrar ríkisstjórnar
Meira
bb.is | 23.05.13 | 10:58Mun aukin áhersla á verknám skila tilætluðum árangri?
Meira