Frétt

Frá Mýrarboltanum í fyrra.
Frá Mýrarboltanum í fyrra.

bb.is | 30.07.2010 | 16:48Stemmning fyrir Mýrarboltanum

„Stemmningin er drullugóð,“ segir Jóhann Bæring Gunnarsson, drullusokkur Mýrarboltamótsins á Ísafirði, en eins og alþjóð veit hefst sjötta Evrópumótið í mýrarbolta í Tungudal á morgun. „Það er flott þátttaka en reyndar er ekki kominn endanlegur fjöldi á mannskapinn. Ég geri ráð fyrir að það eigi eftir að bætast við einhver lið.“ Rúmlega 30 lið eru skráð til leiks, 22 karlalið og 13 kvennalið. „Það eru aðeins færri lið en í fyrra en þau eru fjölmennari lið svo ég geri ráð fyrir að það sé svipaður fjöldi og í fyrra,“ segir Jóhann en þess má geta að metþátttaka var í fyrra. Drullusokkurinn segir að aðstandendur keppendur séu vel undirbúnir og klárir í slaginn.

„Við erum mjög kátir og höfum aldrei verið eins vel undirbúnir. Umgjörð mótsins verður sú glæsilega til þessa. Svo er veðurspáin frábær og það er rosa fiðringur í mönnum. Við vorum þó tilbúnir með plan B ef veðrið skyldi verða eins leiðinlegt og það var í fyrra þegar margir upplifðu sinn kaldasta dag. Við lifðum samt af halda mótið í því veðri og bjuggum okkur undir það í ár svo enginn þyrfti að upplifa slíka erfiðleika aftur.“

Jóhann segir það leggjast vel í menn að mótið verði nú haldið í síðasta sinn í Tungudal en bæjarráð hefur lagt áherslu á að Mýrarboltanum verði fundinn nýr staður að ári. „Við erum bara ánægðir að fá að vera í Tungudalnum og hlökkum til að vera á nýjum stað þegar í ljós kemur hvar það verður. Við höfum engar áhyggjur af því að finna nýjan stað. Dalurinn var eiginlega sprunginn, orðinn alltof lítill fyrir okkur.“

Mýrarboltinn hefur ærlega fest sig í sessi sem einn af helstu viðburðum verslunarmannahelgarinnar. Jóhann segir skipuleggjendur mótsins þó ekki eiga heiðurinn af því. „Það eru keppendur og fólkið á svæðinu sem heldur þessu gangandi. Við erum bara að halda utan um þetta en í raun eru það keppendurnir sem sjá um skemmtunina. Það má því segja að það séu mörg hundruð skemmtikraftar á mótinu.“

Gleðin byrjar kl. 20 í Edinborgarhúsinu en þá verður dregið í riðla. Að því loknu er slegið upp balli á staðnum sem allir keppendur mótsins fá frían aðgang að. Keppt er í tvo daga, riðlakeppni fyrri daginn og útsláttarkeppni seinni daginn. Öll lið spila báða dagana. Þá er keppt í hinum ýmsu aukagreinum s.s. drulluteygjunni, kajakdrætti og drullulangstökki. Á mótinu sameinast aðkomulið og heimalið. Mörg heimaliðin hafa tekið þátt öll skiptin sem mótið hefur verið haldið og mörg aðkomulið hafa komið oftar en einu sinni.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli