Frétt

Bensínlítrinn er ódýrastur hjá Orkunni á Vestfjörðum.
Bensínlítrinn er ódýrastur hjá Orkunni á Vestfjörðum.

bb.is | 30.07.2010 | 16:58Bensínið ódýrast hjá Orkunni

Ódýrasti bensínlítrinn í fjórðungnum er hjá Orkunni. Þar kostar hann 193 krónur. Díselolían er einnig ódýrust hjá Orkunni eða 190 krónur lítrinn. Hjá ÓB bensín kostar bensínlítrinn 193,10 krónur og 193,40 krónur hjá N1 og Olís. Dýrastur er hann hjá Shell þar sem algengt verð er 194,50 krónur. Olíulítrinn er einnig dýrastur hjá Shell þar sem hann kostar 191,50 krónur. Þetta kemur fram á vefnum gsmbensin.is. Rétt er að taka fram að bensínverð tekur örum breytingum en verðin hér miðast við sjálfsafgreiðslu án vildarafsláttar.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (1 Komment )

  1. Komment skrifaði Raftur þann 01.08.10 | 09:52

    veit fólk ekki hverjir eiga ób og orkuna? það eru olíufélögin sjálf,og fólk bara gleypir við þessari endalausu vitleysu......... alveg furðulegt bara!

Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli