Frétt

Retro Stefson.
Retro Stefson.

bb.is | 30.07.2010 | 14:26Retro Stefson á Silfurtorgi

Sumargleði Kimi records heldur útitónleika á Silfurtorgi á Ísafirði í dag. Sumargleðin hélt tónleika í Bragganum á Hólmavík í gær en treður upp í Krúsinni á Ísafirði í kvöld og á morgun. Ákveðið var að blása til útitónleika á Silfurtorgi kl. 16 í dag en þar kemur m.a fram hljómsveitin Retro Stefson en hún hefur getið sér gott orð fyrir tónlist sína undanfarin ár. Retro Stefson spilaði m.a. á Aldrei fór ég suður við góðann orðstír fyrir tveimur árum. Sumargleði Kimi records hefst svo kl. 22 í Krúsinni þar sem fram koma hljómsveitirnar Reykjavík! Retro Stefson, Nolo og Snorri Helgason. Annað kvöld verður síðan aftur slegið upp gleði í Krúsinni en þá mæta einnig Sesar A og Stjörnuryk, og pönkhljómsveitin Æla á svæðið.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli