Frétt

Bensínsælunni er lokið á Ísafirði.
Bensínsælunni er lokið á Ísafirði.

bb.is | 15.03.2010 | 10:28„Bensínsprengja“ á Ísafirði

Bíleigendur á norðanverðum Vestfjörðum nutu þess ekki lengi að vera með lægsta bensínverð á landinu. Athygli var vakin á því í Morgunblaðinu í síðustu viku þegar verðið var mun lægra á Ísafirði, Bolungarvík og Súðavík en víðast annars staðar í landinu og fór verðið á 95 okt. bensíni lægst í rúmar 190 krónur á lítrann á sjálfsafgreiðslustöðvum Orkunnar og ÓB og þjónustustöð N1, án vildarkjara.

Á miðvikudagskvöld hækkuðu stóru olíufélögin eldsneytisverð að jafnaði um fjórar krónur á lítrann og daginn eftir var „sælan“ úti hjá Vestfirðingunum og öðrum landsmönnum. Fór verðið þá á þessum stöðvum upp í 206,50 krónur á lítrann, eða um 8,4% í einni verðbreytingu. Það var því orðið nærri þúsund krónum dýrara fyrir Vestfirðinga að fylla á 60 lítra bensíntank.

Frá þessu var greint í Morgunblaðinu.

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli