Frétt

Mugison.
Mugison.

bb.is | 12.03.2010 | 16:59Mugison kynnir land og þjóð

Vestfirski tónlistarmaðurinn Mugison er nú staddur í Norður-Ameríku þar sem hann mun gefa íbúum Boston og Toronto forsmekk af Íslandi á kynningu sem ber nafnið Taste of Iceland en hún er liður í samkomulaginu Iceland Naturally, sem íslensk stjórnvöld og nokkur íslensk fyrirtæki gerðu fyrst með sér í tengslum við landafundahátíðina vestanhafs árið 2000. Kynningin felur einnig í sér kynningu íslenskra eðalkokka á íslenskum matvælum á fjölda veitingastaða, sérstakt ferðamálaátök, kvikmyndahátíðir, og kynningar á íslenskri vöru og þjónustu. Kynning hófst í Boston í gær og stendur til 17.mars en þá færir hún sig til Toronto þar sem Ísland verður kynnt frá 17. mars til 20.mars.

Fram kemur á heimasíðu Mugison að hann sé farinn að huga að nýrri plötu þar sem hann mun nota hljóðfærið sem hann og Páll Einarsson hönnuðu. Mugison hefur einnig betrumbætt vef sinn en þar er komið nýtt pöntunarkerfi sem auðveldar fólki að versla tónlist hans.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli