Frétt

Tríóið Tríólógía.
Tríóið Tríólógía.

bb.is | 11.03.2010 | 16:58Tríólógía heldur tónleika á Ísafirði

Tríóið Tríólógía heldur tónleika í Hömrum á Ísafirði á miðvikudag í næstu viku en það skipa söngkonurnar Sólveig Samúelsdóttir og Hallveig Rúnarsdóttir ásamt píanóleikaranum Hrönn Þráinsdóttur. Á tónleikunum verða flutt einsöngslög og dúettar eftir Schumann og Mendelssohn. Sólveig er Ísfirðingur og hóf tónlistarferil sinn í Tónlistarskóla Ísafjarða. Hún hefur sungið í óperuuppfærslum hjá Óperustúdíói Íslensku Óperunnar, nú síðast hlutverk Dorabellu í Cosí fan tutte eftir Mozart. Þá kemur hún reglulega fram sem einsöngvari á tónleikum. Sólveig hefur sungið með Schola Cantorum síðan 2007 og flutt með þeim margvíslega tónlist innanlands sem utan og tekið þátt í upptökum, m.a. á tónleikum með Björk. Sólveig hefur auk þess ljáð Disney teiknimyndum rödd sína. Árið 2005 gaf Sólveig út hljómplötuna Melodia.

Tónleikarnir, sem eru þriðju áskriftartónleikar Tónlistarfélagsins á starfsárinu, hefjast kl. 20 á miðvikudagskvöld. Áskriftarkort gilda, en aðgangur er ókeypis fyrir skólafólk 20 ára og yngra.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli