bb.is | 11.03.2010 | 13:58Áforma að veita áminningu vegna Funa
Umhverfisstofnun hefur sent umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar bréf þar sem greint er frá því að stofnunin áformi að veita rekstraraðilum sorpendurvinnslunnar Funa áminningu sbr. lögum um meðhöndlun úrgangs nr 55/2003. Veittur er frestur til 30. apríl í ár til að uppfylla skilyrði laganna. Umhverfisnefnd tók bréfið fyrir á fundi á dögunum og benti á að verið sé að endurskoða meðhöndlun sorps í Ísafjarðarbæ. „Ljóst er að ýtrustu kröfum verði ekki fullnægt á meðan að endurskoðun stendur yfir,“ segir í fundargerð umhverfisnefndar.kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.