bb.is | 11.03.2010 | 13:29Fimm daga Patreksdagshátíð
Vegleg hátíðahöld verða í Vesturbyggð á næstu dögum í tilefni af Patreksdeginum sem rennur upp 17. mars. Um árabil hafa Patreksfirðingar heiðrað minningu heilags Patreks, verndardýrlings Íra. Verða hátíðahöldin veglegri í ár og hefjast annað kvöld með kaffihúsakvöldi með írsku yfirbragði í Sjóræningjahúsinu. Á laugardag verður boðið upp á laugardagsfjör á veitingastaðnum Þorpinu. Á sunnudag verður haldin prjónahátíð Sælukjallarans og Sjóræningjahússins í Sjóræningjahúsinu og boðið verður frítt í bíó á tvær sýningar, bæði fyrir börnin og þá sem eldri eru. Á sjálfan Patreksdag verður bæði grænn dagur á leikskólanum Arakletti og starfsmenn í Sparisjóðnum í Keflavík á Patreksfirði verða grænlitaðir. Þá verður frítt í sund í Sundlauginni Bröttuhlíð í boði Vesturbyggðar og söluturninn Albína býður íbúum frían barnaís með dýfu. Fjölval býður snúða með grænum glassúr á 99 krónur stykkið og eina fría kókómjólk með.Kl. 18 á miðvikudag hefst skemmtun í Félagsheimili Patreksfjarðar. Kynnir er Sr. Leifur R. Jónsson og Anna Jensdóttir flytur erindi um Patreksdaginn. Tónlistarskólinn skemmtir og Halldóra Björnsdóttir leikkona les söguna Gluggavofuna eftir Rögnu Eyjólfsdóttur. Þá kemur Karlakórinn Vestri og Kvennakórinn Bjarkirnar fram og fluttur verður ljóðalestur.Hátíðinni lýkur svo með Patreksdagsbrennu á oddanum.
Þess má til gamans geta að heilagur Patrekur, verndardýrlingur Íra, fæddist í Wales í kringum árið 385. Hann var heiðingi fram að 16 ára aldri þegar hann var hnepptur í þrælahald og snerist í framhaldi af því til kristinnar trúar. Hann varð annar biskup yfir Írlandi og vann við að kristna Íra í 30 ár, oft var hann handtekinn en tókst ætíð að sleppa. Þjóðsagan segir að hann hafi m.a. reist upp fólk frá dauða og útrýmt öllum snákum á Írlandi í messu. Hann dó 17. mars árið 461 og hefur sá dagur alla tíð síðan verið haldinn hátíðlegur á Írlandi sem dagur heilags Patreks.
thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.