bb.is | 11.03.2010 | 13:04Íþróttamaðurinn útnefndur á laugardag
Íþróttamaður Bolungarvíkur fyrir árið 2009 verður útnefndur á laugardag. Fimm íþróttamenn eru tilnefndir, en þeir eru Benedikt Sigurðsson fyrir hlaup og þríþraut, körfuboltamaðurinn Guðmundur Jóhann Guðmundsson, knattspyrnumaðurinn Óttar Bjarnason, kylfingurinn Rögnvaldur Magnússon og dansararnir Þórunn Sigurðardóttir og Tinna Guðmundsdóttir. Íþróttamaður Bolungarvíkur árið 2008 var knattspyrnumaðurinn Andri Rúnar Bjarnason.thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.