bb.is | 10.03.2010 | 14:56Atvinnuleysi eykst lítillega
Skráð atvinnuleysi á Vestfjörðum var 3,6% af áætluðum íbúafjölda í febrúar. Er það lítilsháttar aukning frá fyrsta mánuði ársins þegar atvinnuleysið í fjórðungnum var 3,4%. Í sama mánuði fyrir ári var atvinnuleysið hins vegar 1,8% og hefur atvinnuleysið ekki verið meira í febrúarmánuði síðan fyrir síðustu aldamót. Meðalfjöldi atvinnulausra var 134 í febrúar og þar af 79 karlar og 55 konur. Í lok mánaðar voru 148 á skrá hjá Vinnumálstofnun á Vestfjörðum, 84 karlar og 64 konur. Þar af voru flestir í Ísafjarðarbæ eða 68, en því næst koma Bolungarvík og Vesturbyggð þar sem 24 voru á skrá í hvoru sveitarfélagi. Þá voru þrettán í Súðavíkurhreppi en mun færri í öðrum sveitarfélagsins og enginn er skráður án atvinnu í Tálknafjarðarhreppi. Stærsti aldurshópurinn hjá Vinnumálastofnun á Vestfjörðum 25-35 ára eða 53 talsins. Þetta kemur fram í mánaðarlegri skýrslu Vinnumálastofnunar.Atvinnuleysið var sem fyrr minnst á Vestfjörðum. Atvinnuleysið er 9,9% á höfuðborgarsvæðinu en 8,2% á landsbyggðinni. Mest er það á Suðurnesjum 15%. Atvinnuleysið er 10,2% meðal karla og 8,1% meðal kvenna. Alls voru 16.574 atvinnulausir í lok febrúar. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 13.528, af þeim voru 2.196 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í ráðgjafarviðtöl og á kynningarfundi.
Í skýrslunni kemur fram að oft er lítil breyting á atvinnuástandi frá febrúar til mars. Í fyrra var undantekning þar á en þá var enn talsverð aukning á atvinnuleysi eftir efnahagshrunið haustið 2008. Þannig jókst atvinnuleysi um 9,6% frá febrúar til mars á árinu 2009. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í mars breytist lítið og verði á bilinu 9,1%-9,5%. Í fyrra var atvinnuleysið 8,9% í mars.
thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.