bb.is | 10.03.2010 | 14:28Ferðamálasamtökin funda að Núpi
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða verður haldinn að Hótel Núpi í Dýrafirði laugardaginn 17. apríl. Stefnir í mikla dagskrá í tengslum við aðalfundinn en á föstudagskvöldinu fyrir fundinn verður stefnumótaskýrsla samtakana kynnt, en verið er að leggja lokahönd á hana um þessar myndir og hafa vel yfir 100 manns komið að þeirri vinnu á fundum víðsvegar um Vestfirði. Aðalfundurinn verður síðan haldin á laugardagsmorgni en eftir hann hefst ráðstefna undir yfirskriftinni Umhverfisvottaðir Vestfirðir. Þar halda helstu sérfræðingar landsins um þennan málaflokk erindi og ræða ræða hann út frá öllum sviðum. Þá hefur umhverfisráðherra einnig boðað komu sína á fundinn.„Vonast er til þess að þessi ráðstefna verði til þess að í framhaldinu muni Vestfirðingar ræða í fullri alvöru kosti þess að taka upp umhverfisvottun fyrir svæðið. Bundnar eru vonir til þess að Fjórðungssamband Vestfjarða taki við boltanum og stýri framhaldsvinnunni í góðri samvinnu við önnur sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og íbúa í fjórðungnum,“ segir í tilkynningu frá Ferðamálsamtökum Vestfjarða. Dagskrá aðalfundarins og ráðstefnunnar verður kynnt ítarlega innan tíðar.
kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.