bb.is | 10.03.2010 | 13:01Leita fyrst til heimamanna
Heimamenn eru í miklum meirihluta þeirra sem vinna í Bolungarvíkurgöngum. Ísfirska fyrirtækið Rafskaut sér um rafmagnsvinnu í göngunum og hefur fengið undirverktakann 3X-Technology á Ísafirði til að smíða rafmagnsskápa. Ísfirska verktakafyrirtækið Vestfirskir verktakar ehf. vinnur að því að steypa vegskála auk brúarsmíði í Hnífsdal og kemur að auki að klæðningum í göngunum. Að auki koma ýmis önnur fyrirtæki á svæðinu að verkinu. „Reglan hefur verið sú að alltaf er fyrst leitað til heimamanna“, segir Anna Jörundsdóttir hjá fyrirtækinu Ósafli en eins og kunnugt er sér þetta dótturfyrirtæki Íslenskra aðalverktaka og svissneska verktakafyrirtækisins Marti Contractors, um gerð Bolungarvíkurganga fyrir Vegagerðina. Af 35 starfsmönnum Ósafls eru 27 Vestfirðingar.Framkvæmdir við Bolungarvíkurgöng eru á áætlun og opna á þau fyrir almenningi í sumar. „Það gengur bara mjög vel,“ segir Anna. Lokið var við að sprengja í Bolungarvíkurgöngum í nóvember og var því fagnað við hátíðlega athöfn. Göngin verða 8,7 metra breið og 5,1 kílómetri að lengd. Einnig er verið að byggja um 310 metra langa steinsteypta vegskála, og 3 kílómetra langa vegi og tvær 15 metra langar steinsteyptar brýr. Kostnaður við göngin er áætlaður um 5 milljarðar króna.
Þess má til gamans að vel þykir við hæfi að göngin verði tekin í notkun í sumar en í ágúst verða 60 ár liðin frá því að vegur um Óshlíð var formlega tekinn í notkun.
thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.