bb.is | 10.03.2010 | 13:30Spænskur landsliðsþjálfari í körfuboltabúðir
Undirbúningur fyrir æfingabúðir Körfuknattleiksfélags Ísafjarðar í sumar eru í fullum gangi. Hafa skipuleggjendur búðanna fengið staðfestingu frá Alejandro Martínez Plasencia um að hann sé væntanlegur í búðirnar. Alajandro Martínez er aðalþjálfari U18 ára landsliðs Spánar sem lenti í 5. sæti í Evrópumeistarakeppninni í ágúst. Að auki þjálfar hann lið Laguna Canaris á Tenerife sem er í Adecco LEB oro deildinni á Spáni. „Það er augljóslega mikill fengur að fá þjálfara með slíka reynslu og þekkingu til liðs við okkur í sumar,“ segir á kfi.is. Að öllu óbreyttu munu búðirnar hefjast 6. júní en nánar verður greint frá því síðar.thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.