Frétt

Vestfirskar smábátar byrja vel í mars.
Vestfirskar smábátar byrja vel í mars.

bb.is | 10.03.2010 | 13:05Vestfirskir smábátar aflahæstir í mars

Vestfirskir smábátar verma níu af tíu efstu sætin á lista Aflafrétta.com yfir aflahæstu smábáta yfir 10 bt það sem af er mars. Bolvískir báta verma fjögur efstu sætin en efstur á lista er Guðmundur Einarsson ÍS með rúm 47 tonn í sex róðrum. Hrólfur Einarsson ÍS er í öðru sæti með 46 tonn í 6 róðrum. Þá kemur Sirrý ÍS með 43 tonn í 6 róðrum og Einar Hálfdáns ÍS með tæp 38 tonn í 6 róðrum. Lúkas ÍS frá Ísafirði er í sjötta sæti listans með 32 tonn í 6 róðrum. Þá er Gestur Kristinsson ÍS frá Suðureyri með 31,4 tonn í 6 róðrum í sjöunda sæti. Í áttunda sæti er Bára ÍS frá Suðueyri með 29 tonn í fimm róðrum. Siggi Bjartar ÍS frá Bolungarvík er með 27,7 tonn það sem af er mars í sex róðrum og Kristján ÍS frá Suðureyri er með 27,1 tonn í 6 róðrum í tíunda sæti.

Frá þessu er greint á aflafrettir.com.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli