bb.is | 09.03.2010 | 13:01Átján milljónir í hlut Vestfjarða
Rúmar 18 milljónir króna koma í hlut Vestfjarða til endurbyggingar gamalla húsa en mest er úthlutað til Vestfjarða í ár samkvæmt yfirliti Húsafriðunarnefndar. Auk þess eru veittir styrkir til friðaðra húsa og friðaðra kirkna. Ekki hljóta öll hús á yfirlitinu styrk en alls eru skráð 52 gömul hús til endurbyggingar. Stærsta styrkinn á Vestfjörðum hlýtur Síldarverksmiðjan í Djúpuvík í Árneshreppi, eða 2,4 milljónir. Meðal húsa á Vestfjörðum sem hljóta styrk árið 2010 má nefna Vélsmiðjuna á Patreksfirði sem fær 1,4 milljónir. Rafstöðvarhúsið á Bíldudal og Vatneyrarbúð á Patreksfirði fá einnig eina milljón hvert. Gamla Apótekið á Ísafirði fær einnig eina milljón og þá fær Herkastalinn að Mánagötu 4 og Vinnuver, Mjallargötu 5 á Ísafirði 500 þúsund hvert.Einarshús í Bolungarvík fær 500 þúsund krónur, Eyrardalsbærinn í Álftafirði, þar sem Melrakkasetur Íslands er til húsa, fær 400 þúsund, Kjartanshús á Flateyri fær 600 þúsund og Sigmundarhús á Þingeyri fær einnig 600 þúsund.
Auk styrkja til endurbygginga húsa sem ekki eru friðuð, hlutu Kaldrananeskirkja í Bjarnafirði eina milljón, Sæbólskirkja á Ingjaldssandi fékk 700 þúsund krónur, Staðarkirkja í Aðalvík og Eyrarkirkja í Seyðisfirði fengu 350 þúsund hvert og Stóra- Laugardalskirkja í Tálknafirði 500 þúsund. Bænahúsið í Furufirði og Staðarkirkja í Hrútafirði fengu 300 þúsund krónur.
Hægt er að sjá yfirlit yfir úthlutunina hér.
kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.