Frétt

Veiðimenn á vegum Sumarbyggðar hafa aflað vel undanfarin sumur.
Veiðimenn á vegum Sumarbyggðar hafa aflað vel undanfarin sumur.

bb.is | 09.03.2010 | 11:47Búist við 10% aukningu hjá Sumarbyggð

Bókanir í sjóstangveiðiferðir í sumar hafa gengið vel hjá Sumarbyggð ehf., og gera menn ráð fyrir 10% aukningu frá síðasta sumri. „Þetta hefur gengið ágætlega og ég held við getum glöð við unað,“ segir Finnur Jónsson, stjórnarformaður Sumarbyggðar. Fyrsti hópurinn er væntanlegur til Tálknafjarðar 11. apríl og von er á fyrstu hópunum til Súðavíkur um mánaðamótin apríl og maí. Einnig verður fyrirtækið með sex báta í Bolungarvík en þetta er annað árið sem boðnar eru sjóstangveiðiferðir þaðan á vegum Sumarbyggðar. Fyrirtækið gerir einnig út frá Bíldudal. Fyrsti angi af fyrirtækinu hóf störf árið 2006 en ári seinna sameinaðist Sumarbyggð hf. fyrirtækinu Próton ehf, og Tálknabyggð ehf. undir merkjum Sumarbyggðar hf/ISangling.

Þess má geta að Sumarbyggð var því óhappi að vatn flæddi inn í hús fyrirtækisins í Súðavík í asahláku fyrir helgi. „Það var heppni að verið var að vinna í húsunum þannig að þetta uppgötvaðist strax. Vatn á gólfum er frá 20 sentimetrum til 40 sentimetrum og við höfum staðið í ströngu að vinna við að koma þessu í lag,“ segir Finnur. Hann segir þó ekki tjón hafa hlotist af þessu.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (1 Komment )

  1. Komment skrifaði Kambsnes þann 09.03.10 | 13:06

    Frábært að heyra að það gengur vel hjá Sumarbyggðinni með að markaðssetja sjóstangveiði á Vestfjörðum Þetta er að gera svo mikið fyrir mannlífið og byggðirnar. Vonandi hlúa sveitarfélög og stjórnvöld að þessari starfsemi og gefa henni frjóa mold til að blómstra enn meira.

Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli