Frétt

Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði.
Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði.

bb.is | 09.02.2010 | 14:25Vilja birta lánastöðu sveitarfélaga

Á fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar í gær var lagt fram bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga þar sem óskað eftir því að sveitarstjórnir veiti almenna heimild fyrir því að lánasjóðurinn birti upplýsingar um stöðu lána sveitarfélagsins hjá sjóðnum. Lánasjóðurinn sendir öllum lántakendum samhljóða bréf þar sem óskað er sömu heimildar í þeim tilgangi að geta birt í opinberum gögnum s.s. árskýrslum og fyrir fjárfestum, sundurliðaðar upplýsingar um útlán sjóðsins og hvernig þau skiptast á milli sveitarfélaga og félaga í þeirra eigu. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði að veita umbeðnar upplýsingar og bæjarstjóra verði falið að undirrita þar til gert samþykki.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli