bb.is | 08.02.2010 | 14:49Sprenging glumdi í göngunum
„Ég hrökk við í bælinu, þetta voru djöfuls læti,“ segir Finnbogi Hermannsson, fréttamaður í Hnífsdal í samtali við mbl.is, þegar hann lýsir sprengingum í Bolungarvíkurgöngum sem hristu Hnífsdal á laugardagskvöld. Ekki er víst hvað margir urðu varir við þetta því flestir íbúarnir voru að skemmta sér á þorrablóti í félagsheimilinu. Þó hefur heyrst að íbúar í Arnardal hafi orðið varir við sprengingarnar. „Þetta voru eins og kjarnorkusprengingar. Ég hélt að þær væru uppi í himinhvolfinu eða úti á sjó. Ég reis úr bæli mínu frá bókinni og fór út á tröppur eins og ég er vanur. Þar sem ég sá ekki neitt hringdi ég í lögregluna. Þá hafði lögreglumaðurinn heyrt þetta alla leið út á Ísafjörð en taldi að hurð hefði verið skellt fast,“ segir Finnbogi við mbl.is.Lögreglan fékk tilkynningu um hávaða í Hnífsdal klukkan 21.38 á laugardagskvöld. Lögreglumennirnir fóru út í Hnífsdal til að kanna málið. Í fyrstunni fundu þeir ekki skýringar, ekki fyrr en þeir náðu sambandi við menn sem vinna við gerð jarðganganna milli Hnífsdals og Bolungarvíkur. Kom þá í ljós að þeir höfðu verið að sprengja utarlega í göngunum, Hnífsdalsmegin. „Á einstaka stöðum hefur þurft að víkka út svokölluð undirbrot og stækka göngin eilítið. Um er að ræða 10-15 sentimetra bergnibbur sem hefur þurft að sprengja og kom okkur það óvart hversu mikill glymjandi varð af þessu. Líklega er það af því ekkert er í göngunum núna að það bergmálaði svona mikið,“ sagði Rúnar Ágúst Jónsson, staðarstjóri Ósafls ehf.
Finnbogi segir að íbúarnir hafi talið sprengingum í göngunum lokið. Þeir hefðu fundið fyrir þeim í tvö ár og þær hefðu alltaf verið dýpra en þó svo öflugar að postulínshundarnir hefðu glamrað. Rúnar segist halda að síðasta smáskotið í göngunum verði í dag.
thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.