Frétt

Margt var um manninn á opnun Verkstæðis Stefáns Arnar.
Margt var um manninn á opnun Verkstæðis Stefáns Arnar.
Stefán Örn er hæstánægður með viðtökurnar. Hér er hann ásamt Þresti Marsellíusarsyni.
Stefán Örn er hæstánægður með viðtökurnar. Hér er hann ásamt Þresti Marsellíusarsyni.

bb.is | 08.02.2010 | 09:57Nýtt verkstæði fær góðar viðtökur

Nýtt bifreiðaverkstæði á Ísafirði hefur fengið góðar viðtökur en margt var um manninn við opnun Verkstæðis Stefáns Arnar á þriðjudag í síðustu viku. „Fólk kom færandi hendi með gjafir og hamingju óskir með nýja fyrirtækið. Ekki er annað að sjá en að fólk taki þessu verkstæði vel miðað við viðtökurnar sem ég hef fengið,“ segir Stefán Örn Stefánsson sem segist þakklátur fyrir allar þær kveðjur og lof sem hann hefur fengið. Boðið var upp á kaffi og kökur í tilefni opnunarinnar og var vel útilátið af kræsingum. Stefán vill benda þeim sem eru skráðir á samskiptavefinn Facebook að verkstæðið sé komið með síðu þar. Hægt er að finna hana með því að slá inn í leitargluggann „Verkstæði Stefáns Arnar“. Þar verða birtar tilkynningar um aukna þjónustu um leið og hún býðst.

„Það er t.d. í skoðun að vera með bilanagreiningu á bílum og einnig hef ég mikið verið spurður um smurningu svo það er einnig í skoðun,“ segir Stefán.Verkstæðið er til húsa að Sindragötu 10 eða gamla Pólshúsinu. Þar er Stefán með bílalyftu, sprautuaðstöðu og annað sem viðkemur bílum og tækjum. Stefán hefur reynslu í almennum viðgerðum, réttingum, sprautun og járnsmíði en hann er menntaður bifreiðasmiður.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli