bb.is | 08.09.2009 | 16:47Olíuhreinsistöðin í Arnarfirði: Málið að mestu í kyrrstöðu
„Það er mín skoðun að málið sé ekki komið út af borðinu“, segir Ragnar Jörundsson bæjarstjóri í Vesturbyggð þegar hann er inntur frétta af áformum um olíuhreinsistöð í Arnarfirði. „Ennþá er verið að vinna í þessu en vegna efnahagsástandsins í heiminum er málið að mestu í kyrrstöðu. Að svo stöddu er ekkert annað af þessu að frétta“, segir Ragnar. Í nóvember í vetur eftir að hrunið varð á Íslandi sagði Hilmar Foss, talsmaður félagsins Íslensks hátækniiðnaðar sem áformar byggingu olíuhreinsistöðvarinnar, að efnahagsástandið hér á landi og í heiminum öllum breytti ekki neinu um áform félagsins þótt vissulega hafi hægt á undirbúningi vegna kreppunnar og óvissu á fjármagnsmarkaði. Því haldi menn að sér höndum um stundarsakir varðandi fjármögnun verkefnisins en snúi sér að öðrum verkum varðandi undirbúning á meðan.Í skýrslu Byggðastofnunar undir heitinu Byggðarlög með viðvarandi fólksfækkun, sem út kom á síðasta ári, sagði þar sem fjallað var um Vesturbyggð, veikleika sveitarfélagsins og styrkleika: „Stóra tækifærið er bygging olíuhreinsunarstöðvar við Arnarfjörð“.
hlynur@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.