mbl.is | 04.07.2009 | 11:29Fékk kríur í fangið og ók út af
Ökumaður bifhjóls missti stjórn á hjólinu þegar hann fékk kríur í fangið við Bolungarvík um hálfáttaleytið í gærkvöldi. Hjólið lenti út af veginum og ökumaðurinn og farþegi féllu af hjólinu. Ökumaðurinn axlarbrotnaði og viðbeinsbrotnaði en farþeginn hlaut minni meiðsl. Báðir eru enn undir eftirliti á sjúkrahúsinu á Ísafirði þangað sem þeir voru fluttir. Mikið kríuvarp er á svæðinu þar sem slysið varð.Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (1 Komment )
Jæja það eru fleiri en Ólína sem fá sér kríu við stýrið.
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.