bb.is | 03.06.2009 | 10:22Ljóðaleikurinn Þorpið frumsýndur
Félag um Ljóðasetur Íslands í samstarfi við Kómedíuleikhúsið frumsýnir ljóðaleikinn Þorpið í Patreksfjarðarkirkju á laugardag. Þorpið er einhver þekktasta og markverðasta ljóðabók sem gefin hefur verið út á Íslandi og hefur notið fádæma vinsælda allt frá því hún kom fyrst út árið 1946. Höfundur Þorpsins, Jón úr Vör, var einn af formbyltingarmönnum íslenskrar ljóðlistar, en Þorpið er fyrsta íslenska ljóðabókin sem einungis hafði að geyma ljóð í óbundnu formi auk þess sem yrkisefnin voru önnur en áður tíðkaðist. Útgáfa hennar braut því blað í íslenskri bókmenntasögu. Í Þorpinu yrkir Jón um uppvaxtarár sín á Patreksfirði en þar fæddist hann árið 1917.
Í ljóðaleiknum Þorpið flytja bræðurnir Þórinn og Elfar Logi Hannessynir úrval ljóða úr Þorpinu. Þórarinn flytur frumsamin lög við nokkur ljóðanna og Elfar Logi flytur ljóð í leik og tali. Ljóðaleikurinn Þorpið verður sem fyrr segir frumfluttur í Patreksfjarðarkirkju kl. 11 á laugardag. Sama dag verður sýnt í Bíldudalskirkju kl.17 og í Skjaldborgarbíó á Patreksfriði kl.20. Daginn eftir verður Þorpið sýnt á norðanverðum Vestfjörðum. Leikurinn hefst í Þingeyrarkirkju kl.13 á sunnudag. Næsta sýning verður í Hólskirkju í Bolungarvík kl.16 og loks verður sýnt í Flateyrarkirkju kl.18. Miðasala á sýningarnar er við innganginn á hverjum stað og er miðaverði stillt mjög í hóf eða aðeins 1.000 krónur.
Rétt er að geta þess að ókeypis er inná frumsýninguna í Patreksfjarðarkirkju í boði þorpsins.
thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.